Pistill framkvæmdastjóra - Janúar
Pistill framkvæmdastjóra - Janúar
Nýtt ár er hafið og fyrsti mánuður þess flaug hjá. Eins og alltaf var fjöldi verkefna í gangi hjá SSNE í janúar. Þar má meðal annars nefna sameiginlega loftslagsstefnu Norðurlands eystra sem nú er til umfjöllunar hjá sveitarfélögunum, en stefnt er að því að stefnan verði staðfest á Ársþingi SSNE sem haldið verður 26. mars næstkomandi á Dalvík. Stefnan er aðgerðamiðuð og eru aðgerðirnar fáar, skýrar og markvissar til að tryggja að þær verði unnar hratt og örugglega.
Í því samhengi langar mig að nefna að fimmtudaginn 12. febrúar n.k. verður haldið málþing í Hofi á Akureyri undir yfirskriftinni Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga – frá áskorunum til aðgerða: leiðarvísir, verkfæri og reynsla sveitarfélaga. Málþingið er lokahnykkur í aðgerð C.10 í byggðaáætlun, Áhrif loftslagsbreytinga og sveitarfélög, sem Byggðastofnun hefur leitt í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Tvö sveitarfélög á Norðurlandi eystra, Akureyrarbær og Fjallabyggð, tóku beinan þátt í þeirri vinnu og er dagskrá málþingsins áhugaverð.
Hagsmunagæsla fyrir landshlutann hefur verið fyrirferðarmikil nú í upphafi árs, en um þessar mundir eru fjölmörg stór mál til umfjöllunar, t.a.m. á Alþingi. Þetta eru oft mál sem skipta landshlutann allan miklu. Þar má nefna samgönguáætlun, sem hefur víðtæk áhrif á búsetu, atvinnuuppbyggingu og öryggi íbúa. Þá er einnig Grænbók um byggðamál nú í Samráðsgátt stjórnvalda, með umsagnarfrest til 2. mars. SSNE leggur áherslu á að sjónarmið sveitarfélaga, íbúa og atvinnulífs á Norðurlandi eystra komi skýrt fram í umsögnum sínum, en einnig höfum við lagt mikla áherslu á að auka meðvitund stofnana og ráðuneyta um tækifæri, styrkleika og þarfir landshlutans og landsbyggðarinnar í heild.
Það eru annars fjölmargir áhugaverðir viðburðir framundan í febrúar og má þar fyrst nefna hádegisfyrirlestur Forvitinna frumkvöðla um fjármögnun sprotafyrirtækja í dag þriðjudaginn 3. febrúar kl. 12:00. Þá mun Norðanstormur fara fram í samstarfi SSNE og SSNV í Hofi á Akureyri þann 26. febrúar kl. 9:30–12:00. Norðanstormur er vettvangur þar sem hugmyndir, fjármagn og framtíðarsýn mætast.
Ég hvet öll sem hafa áhuga á nýsköpun, fjárfestingum og uppbyggingu atvinnulífs á Norðurlandi eystra til að mæta og taka þátt í Norðanstorminum, en minni einnig á að hjá SSNE er ávallt í boði fjölbreytt ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála. Starfsfólk okkar er staðsett víða um landshlutann og er auðvelt að bóka tíma hjá ráðgjafa á heimasíðunni okkar.
Það voru fjölmargar jákvæðar fréttir í janúar sem bera með sér að hér er öflugt samfélag og frumkvæði í atvinnulífi sem gefur tilefni til bjartsýni hér á Norðurlandi eystra. Virkilega spennandi uppbygging t.a.m. að fara af stað á Þeistareykjum, meðal annars með styrkum stuðningi frá nýjum framtakssjóði KEA svf. og Kaldbaks ehf.; Landvættir slhf. sem verður spennandi að fylgjast með á næstu misserum. Þá finnum við hjá SSNE fyrir vaxandi áhuga fjárfesta á landshlutanum öllum og greinilegt að margir sem hafa áhuga á uppbyggingu í landshlutanum.
Já, árið fer vel af stað á Norðurlandi eystra.
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE.