Fara í efni

Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema

Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema

Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.000.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki.

Rafrænt umsóknarform, verklagsreglur vegna úthlutunar og byggðaáætlun 2018-2024 er að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is.

Umsóknum skal skilað til Byggðastofnunar á þar til gerðum rafrænum eyðublöðum. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það tengist byggðaþróun og eftir atvikum styður við byggðaáætlun.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgímsdóttir, sigga(hjá)byggdastofnun.is eða í síma 455 5461 / 869 7203

Umsóknarfrestur er til miðnættis, þriðjudaginn 2. nóvember 2021.

 

Getum við bætt síðuna?