Fara í efni

Brennur þú fyrir Betri Bakkafirði?

Brennur þú fyrir Betri Bakkafirði?

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, auglýsir eftir verkefnisstjóra verkefnisins „Betri Bakkafjörður“. Verkefnið er hluti af verkefnum „Brothættra byggða“ og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, SSNE og Langanesbyggðar. Um 100% starf er að ræða. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 16. október kl. 12.00.

Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfið. Háskólamenntun er kostur.
Haldbær reynsla af verkefnastjórnun.
Góð almenn rit- og tölvufærni.
Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg.
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og færni í mannlegum samskiptum.

Helstu verkefni
Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar og markmiðum verkefnisáætlunar Betri Bakkafjarðar.
Leiðsögn og stuðningur við íbúa í frumkvæðisverkefnum þeirra.
Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu.
Miðlun upplýsinga og skýrslugerð til samstarfsaðila og íbúa.
Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu.
Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið.

Nánari upplýsingar um verkefnið Brothættar byggðir og verkefnið Betri Bakkafjörð má finna á heimasíðu Byggðastofnunar. Verkefnið er tímabundið til loka árs 2024. Starfsstöð verkefnisstjóra er á Bakkafirði og er æskilegt að verkefnisstjóri sé búsettur í Langanesbyggð.

Nánari upplýsingar veitir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, albertina@ssne.is. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á sama netfang merkt „Betri Bakkafjörður“.

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 16. október kl. 12.00.

 

Getum við bætt síðuna?