Fara í efni

Bókun stjórnar vegna Húsavíkurflugs

Mynd: Markaðsstofa Norðurlands
Mynd: Markaðsstofa Norðurlands

Bókun stjórnar vegna Húsavíkurflugs

Eftirfarandi bókun var samþykkt af stjórn SSNE 26. ágúst síðastliðinn:

Stjórn SSNE tekur undir bókun byggðaráðs Norðurþings frá 13. júlí síðastliðinn. Reglulegt áætlunarflug á Aðaldalsflugvöll er mikilvægt fyrir íbúa, atvinnulíf og frekari vöxt svæðisins. Flugið er jafnframt undirstaða þess að vel takist til í þeirri uppbyggingu sem framundan er til að mynda í landeldi, uppbyggingu Grænna iðngarða á Bakka og tvöföldun Þeistareykjavirkjunar.

Stjórn SSNE hefur áður fjallað um mikilvægi þess að stutt verði við flug um Aðaldalsflugvöll og kom meðal annars inn á það í umsögn sinni um drög að Samgönguáætlun á Samráðsgátt stjórnvalda fyrr í sumar og ítrekar stjórnin þá afstöðu sína.
Stjórn staðfestir bókunina.

Getum við bætt síðuna?