Bókun stjórnar vegna Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra
Bókun stjórnar vegna Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra
Á 85. fundi stjórnar SSNE bókaði stjórn eftirfarandi vegna fyrirhugaðrar niðurlagningar á Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra:
Stjórn SSNE tekur undir bókanir Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra vegna fyrirhugaðs flutnings verkefna heilbrigðiseftirlits til ríkisins frá og með 1. janúar 2027.
Stjórnin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til loka árs 2026, að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir og að skýrt liggi fyrir hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga áður en breytingarnar taka gildi.
Stjórn SSNE telur mikilvægt sveitarfélög á starfssvæðinu hefji undirbúning að þeim verkefnum sem áfram verða á þeirra ábyrgð, meðal annars með kortlagningu samþykkta, stjórnsýsluverkefna og þeirrar sérþekkingar sem byggst hefur upp innan HNE. Þótt lögbundið eftirlit flytjist til ríkisins munu sveitarfélög áfram bera ríkar skyldur og ábyrgð á sviðum sem tengjast skipulagsmálum, umhverfisvernd, vatnsvernd, fráveitumálum, úrgangsmálum, mengunarvörnum, dýrahaldi og öðrum verkefnum þar sem þekking og reynsla starfsfólks HNE hafa verið mikilvægur þáttur í ákvarðanatöku og þjónustu við sveitarfélögin. Jafnframt er mikilvægt að meta hvort ávinningur geti falist í áframhaldandi eða nýju samstarfi sveitarfélaga um ráðgjöf, sérfræðiþjónustu eða önnur verkefni sem falla utan verkefnasviðs ríkisins.
SSNE er vettvangur samráðs sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og því góður vettvangur til umræðu um mögulegar sameiginlegar lausnir og samstarf sem stuðlað geti að því að varðveita þekkingu, samræmingu og faglega þjónustu á svæðinu eftir 1. janúar 2027 og hefur að því marki breytt dagskrá haustþings SSNE 2026 sem haldið verður á Dalvík þann 9. september til að hefja umræðu um framtíðar skipan þeirra verkefna sem áfram verða á ábyrgð sveitarfélaga.
Þess má til viðbótar geta að stjórn SSNE hefur frá upphafi máls sent inn umsagnir bæði á Samráðsgátt stjórnvalda og til nefnda Alþingis þar sem hvatt hefur verið til þess að gæta vel að undirbúningi málsins til að tryggja m.a. þessa þætti sem nefndir eru hér að ofan í bókun stjórnar SSNE.