Fara í efni

Auknar fjárfestingar á Norðurlandi eystra

Auknar fjárfestingar á Norðurlandi eystra

SSNE er að hefja undirbúning áhersluverkefnis Sóknaráætlunar Norðurlands eystra sem snýr að því að fá auknar fjárfestingar í landshlutanum.

Verkefnið felst meðal annars í því að greina fjárfestingartækifæri á Norðurlandi eystra í samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu. Ráðgert er að vinna með hverju sveitarfélagi fyrir sig og greina kosti og áherslur hvers sveitarfélags.

Verkþættir:

  • Sveitarfélag óskar eftir að taka þátt í verkefninu.
  • Fundur verkefnastjóra með sveitarstjóra til kynningar á verkefninu.
  • Netkönnun lögð fyrir sveitarstjórn.
  • Vinnustofa - fundað með sveitarstjórn og farið yfir niðurstöður netkönnunar. Fjárfestingartækifæri greind, annarsvegar 1-2 stór verkefni sem kalla á aukna innviði og taka lengri tíma og hins vegar 1-2 smærri verkefni sem kalla ekki á aukna innviði og hægt að hefjast handa við strax.
  • Verkefnastjórar draga saman niðurstöður og kynna fyrir sveitarfélaginu.

Þau sveitarfélög sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu er hvött til að hafa samband við verkefnastjóra þess:
Anna Lind annalind@ssne.is
Díana diana@ssne.is

Getum við bætt síðuna?