Fara í efni

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr vinnustaðanámssjóði

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr vinnustaðanámssjóði

Vinnustaðanámssjóður er starfræktur samkvæmt lögum nr. 71/2012 um vinnustaðanámssjóð. Markmið styrkja til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Styrkir til vinnustaðanáms eru veittir á grundvelli ákvörðunar um framlög á fjárlögum hvers árs.

Fyrir hverja?

  • Fyrirtæki og stofnanir vegna vinnustaðanáms nema í iðnnámi eða öðru námi á framhaldsskólastigi þar sem vinnustaðanám og starfsþjálfun er skilgreindur hluti námsins.

  • Aðeins eru veittir styrkir til náms- eða starfsþjálfunar í greinum á grundvelli aðalnámsskrár framhaldskóla. Um er að ræða löggiltar iðngreinar og heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinar.

Til hvers?

  • Að stuðla að eflingu vinnustaðanáms og fjölga tækifærum nema til starfsþjálfunar.
  • Veittir eru styrkir til þeirra sem uppfylla skilyrði; grunngjald fyrir hverja viku sem nemandi er í vinnustaðanámi. Styrkur fyrir hvern nema er veittur að hámarki til 48 vikna fyrir árið allt, þó aldrei lengur en sem nemur þeim heildartíma sem krafist er í vinnustaðanámi fyrir viðkomandi nám.
  • Náms- eða starfsþjálfunarsamningur skal vera fyrirliggjandi fyrir hvern nema og skal í lok tímabils sýna fram á að nemar hafi sannanlega tekið þátt í vinnustaðanámi eða starfsþjálfun.
  • Styrkir til vinnustaðanáms eru veittir á grundvelli ákvörðunar um framlög á fjárlögum hvers árs. Fjárhæð styrkja ræðst því af framlögum á fjárlögum til málaflokksins og eftirspurn. Stjórn vinnustaðanámssjóðs tekur ákvörðun um veitingu styrkja og hefur eftirlit með nýtingu fjármuna sjóðsins.

Skilyrði úthlutunar

Almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og námssamningur og starfsþjálfunarsamningur skulu vera fyrirliggjandi. Sækja þarf um í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

 Næsti umsóknarfrestur er 23. nóvember 2021 kl. 15:00.

 Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, s. 5155843. Einnig er tekið er á móti fyrirspurnum á vinnustadanamssjodur(hja)rannis.is

 

 

Getum við bætt síðuna?