Fara í efni

Ársþing SSNE 2026 haldið í gær

Ársþing SSNE 2026 haldið í gær

Ársþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) fór fram á Teams í gær, miðvikudaginn 26. mars 2026. Þingið var vel sótt en óhagstætt veður varð til þess að ákveðið var að halda þingið rafrænt, en ekki á Dalvík eins og stóð til.

Á þinginu voru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra og afgreiðsla ársreiknings SSNE fyrir árið 2025. Þá var endurskoðuð fjárhagsáætlun samtakanna fyrir árin 2026–2030 kynnt og samþykkt.

Ein helsta afgreiðsla þingsins var samþykkt sameiginlegrar loftslagsstefnu Norðurlands eystra, sem markar mikilvægt skref í samstilltri loftslagsvinnu sveitarfélaga á svæðinu og er að hluta afurð vinnu RECET verkefnisins. Stefnan var unnin í víðtæku samráði við sveitarfélögin og byggir á skýrum markmiðum og aðgerðum.

Þá samþykkti ársþingið jafnframt ályktanir þar sem lögð var áhersla á meðal annars:

  • mikilvægi öflugra samgangna og bættrar vetrarþjónustu,
  • áframhaldandi uppbyggingu og eflingu Akureyrarflugvallar og um fyrirhugaða þjónustuskerðingu þar,
  • tryggt afhendingaröryggi raforku,
  • mikilvægi Sjúkrahússins á Akureyri og Háskólans á Akureyri sem lykilstofnana í byggðaþróun,
  • og að sjónarmið landsbyggðarinnar séu virk í allri stefnumótun og ákvarðanatöku ríkisins.

Sérstakur gestur þingsins var Jón Björn Hákonarson, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem flutti ávarp þar sem hann lagði áherslu á samstöðu sveitarfélaga, jafnræði stjórnsýslustiga og mikilvægi sameiginlegrar hagsmunabaráttu.

Ársþinginu lauk með þökkum til kjörinna fulltrúa, stjórnar og starfsfólks SSNE fyrir öflugt samstarf á kjörtímabilinu og með bjartsýni til áframhaldandi samvinnu í þágu Norðurlands eystra.

Fyrir áhugasöm þá má nálgast ályktanir og önnur gögn þingsins hér

Getum við bætt síðuna?