Fara í efni

Án orða, fyrir öll

Gestir hrífast með og glaðværð fer um hópinn á viðburði Boreal
Gestir hrífast með og glaðværð fer um hópinn á viðburði Boreal

Án orða, fyrir öll

Boreal er alþjóðleg hátíð tileinkuð dansmyndum. Markmið hátíðarinnar er að skeyta saman inn- og erlendu listafólki, byggja brýr og hvetja til samstarfs.  Hátíðin skapar ekki einungis sviðspall til kynningar á vídeódansverkum heldur jafnframt sæti fyrir áhorfendur; rými fyrir listunnendur, litla dansara, nemendur og áhugafólk til að kynnast faginu frá ólíkum hliðum sem og kvikmyndalist.

Fjórða útgáfa dansmyndahátíðarinnar Boreal fer fram 10. - 23. nóvember 2023. Hátíðin fer fram í Listagilinu á Akureyri þessar tæpu tvær vikur og fara sýningar fram í Listasafninu á Akureyri, Deiglunni og Mjólkurbúðinni. Herlegheitin hófust á föstudaginn með setningarathöfn og fyrstu sýningum dansmynda auk innsetninga í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri. Jafnframt var og verður boðið upp í dans. 

Boreal Screendance Festival miðar að eflingu danslista og margmiðlunar á Norðurlandi eystra með sérstaka áherslu á alþjóðasamstarf. Í ár verða sýndar 36 dansmyndir og vídeódansverk eftir listafólk og hópa frá 22 löndum og hefur dagskráin aldrei verið fjölbreyttari þegar litið er til fjölda listafólks, fjölbreytni verka og uppruna þeirra.

Þessi útgáfa Boreal markar einnig fyrsta skiptið þar sem dansverk er flutt á sviði fyrir framan áhorfendur. Kemur það í hlut Suður-Kóreska listamannsinns Hoyoung Im sem flytur dansgjörningin EUPHORIA í Deiglunni fimmtudaginn 16. nóvember. Boreal stendur einnig fyrir samkomum og fögnuðum á sýningartímanum.

Mikið púður er lagt í umgjörð hátíðarinnar og að verkin sem tekin eru til sýningar séu sett fram við bestu mögulegu aðstæður hvað varðar hljóð og mynd. Sé miðað við aðsókn síðustu ára hentar Boreal jafnt heimafólki, aðfluttum sem og ferðamönnum enda alþjóðleg hátíð í anda. Allir gestir ættu þannig að geta fundið eitthvað við sitt hæfi enda fjölbreytileiki dansmyndanna gríðarlegur sem endurspeglar vel þann fjölda listafólks allsstaðar að úr heiminum sem tekur þátt. Sérstaða verkefnisins er einnig mikil enda eina hátíðin sinnar tegundar sem haldin er árlega hérlendis.

Það er samtímadansarinn og danshöfundurinn Yuliana Palacios sem er stofnandi og verkefnastjóri Boeral. Yuliana er frá Mexíkó en fluttist til Íslands árið 2016 og hefur síðan þá látið að sér kveða í menningarlífinu hérlendis. Hefur hún ýmist sett upp sjálfstæð dans- og gjörningaverk eða unnið í samstarfi við annað listafólk auk þess að sinna kennslu. Síðustu ár hefur Yuliana æ meir fengist við vídeódans og er dansmyndahátíðin Boreal ein birtingarmynd þess.

Boreal hlaut hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2021 sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni.

Þessi einstaka hátíð hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar en það eru menningar- og viðskiptaráðuneytið, innviðaráðuneytið sem og sveitarfélög á Norðurlandi eystra sem lögðu til fjármagn í sjóðinn. Hægt er að lesa nánar um Boreal og önnur spennandi verkefni sem hlutu framgang, í úthlutunarsamantekt Uppbyggingarsjóðs.

Aðrir samstarfs- og styrktaraðilar Boreal Screendance Festival 2023 eru Physical Cinema Festival, Prentmet/Oddi, Listasafnið á Akureyri og Gilfélagið/Deiglan.

Við hvetjum íbúa Norðurlands eystra og gesti að nýta sér tækifærið og njóta þessarar metnaðarfullu dagskrár. Nánari upplýsingar má finna inn á

Instagram: https://www.instagram.com/boreal_akureyri/
Facebook: https://www.facebook.com/borealakureyri
Heimasíða: https://borealak.is/

Getum við bætt síðuna?