Fara í efni

Ályktanir haustþings SSNE 2026

Haustþing SSNE fór fram á Dalvík þann 9. september 2026.
Haustþing SSNE fór fram á Dalvík þann 9. september 2026.

Ályktanir haustþings SSNE 2026

Haustþing SSNE 2026, sem haldið var á Dalvík í síðustu viku, samþykkti ályktanir um fjölmörg mikilvæg hagsmunamál Norðurlands eystra.

Á meðal þeirra mála sem þingið fjallar um eru uppbygging Akureyrarflugvallar og öryggisinnviða, orkuöryggi, fjarskipti, ferðaþjónusta, menntun og aðgengi að hæfni, heilbrigðis- og endurhæfingarþjónusta, staðsetning opinberra starfa og farsæld barna óháð búsetu. Þá samþykkti þingið að fela stjórn SSNE að undirbúa sérstakt málþing um innviði og öryggismál á Norðurlandi eystra í byrjun árs 2027.

Þingið fjallaði jafnframt sérstaklega um fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón og sambærilega starfsemi og skoraði á ríkisstjórn og Alþingi að endurskoða fyrirhugaðar breytingar með tilliti til áhrifa þeirra á atvinnuuppbyggingu og heilsársferðaþjónustu á landsbyggðunum.

Ályktanir haustþings SSNE 2026 má lesa í heild hér að neðan:
Ályktanir Haustþings [á .pdf formi]

Getum við bætt síðuna?