Fara í efni

Alþjóðleg rannsóknaköll kynnt á Akureyri 22. maí

Alþjóðleg rannsóknaköll kynnt á Akureyri 22. maí

Fulltrúar frá National Science Centre (NCN) í Póllandi og norsku rannsóknamiðstöðinni heimsækja Háskólann á Akureyri fimmtudaginn 22. maí til að kynna væntanleg rannsóknaköll innan EEA–Norway Grants í Póllandi.
 
Kynningin er ætluð rannsakendum sem hafa áhuga á alþjóðlegu samstarfi og felur í sér yfirlit yfir fjármögnun fyrir grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og nýsköpun. Sérstök áhersla verður lögð á komandi köll, þar á meðal GRIEG‑Bis, LANGSPIL‑Interdisciplinary og smærri samstarfs- og undirbúningsstyrki. Einnig verður kynnt nýtt tengslamyndunartól sem auðveldar samstarf við pólskar rannsóknastofnanir.
 
Köllin bjóða íslenskum rannsakendum tækifæri til þátttöku sem samstarfsaðilar í pólskum rannsóknaverkefnum, meðal annars á sviði þverfaglegra rannsókna, grænna umskipta, samfélagslegrar þátttöku og lýðræðis.
 

SSNE hvetur alla sem starfa að rannsóknum og nýsköpun til að nýta þetta tækifæri.
Getum við bætt síðuna?