„Á ábyrgð ráðuneytanna að stilla saman stoðkerfi“
„Á ábyrgð ráðuneytanna að stilla saman stoðkerfi“
Mikilvægi samstarfs og samhæfingar þekkingarstarfsemi á landsbyggðinni var til umræðu á allsherjarfundi landshlutasamtaka sveitarfélaga, markaðsstofa og Byggðastofnunar sem fer fram í Borgarnesi í dag og á morgun.
„Það er á ábyrgð ráðuneytanna að stilla saman stoðkerfin svo fjármunir nýtist sem best heima í héraði og kraftar allra fái að njóta sín,“ sagði Óli Halldórsson, sérfræðings á skrifstofu háskóla og vísinda í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
Fundurinn hófst nú eftir hádegi í Hjálmakletti, mennta- og menningarhúsi Borgarbyggðar, og eru sjö fulltrúar frá SSNE þátttakendur í honum.
Óli fór í erindi sínu yfir fjölbreytta innviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar í byggðum landsins. Þar gegna meðal annars háskólar, þekkingar- og háskólasetur, Fab Lab-smiðjur, náttúrustofur, símenntunarmiðstöðvar og atvinnuráðgjöf mikilvægu hlutverki. Verkefni þessara aðila heyra undir ólík ráðuneyti og því skiptir máli að hlutverk og verkaskipting séu skýr og samstarf nýti styrkleika hvers og eins.
Óli lagði áherslu á þann ávinning sem getur orðið þegar þekkingarstarfsemi er leidd saman og aðilar starfa í nánum tengslum. „Þar sem best gengur að láta þekkingarstarfsemi smita út frá sér er hún undir sama þaki. Þá verður krafturinn mestur,“ sagði Óli. Með samstarfi og myndun þekkingarklasa geti stofnanir styrkt hver aðra og stuðningsumhverfið virkað betur sem ein heild.
Meðal mögulegra leiða sem Óli nefndi voru skýrari skyldur og hvatar til samstarfs í samningum, markvissari verkaskipting og virk þátttaka lykilstofnana í hverju héraði. Þá þurfi að skýra hver beri ábyrgð á að leiða aðila saman og efla getu svæðanna til að sækja fjármagn með fleiri og sterkari umsóknum. Þannig megi styrkja þekkingarinnviði í byggðum og nýta betur þau tækifæri sem felast í menntun, rannsóknum og nýsköpun.
Nánar verður fjallað um fundinn í Borgarnesi hér á vef SSNE í dag og á morgun.