170 milljónum úthlutað úr Loftslagssjóði
170 milljónum úthlutað úr Loftslagssjóði
Loftslagssjóður hefur úthlutað 170 milljónum króna til 24 verkefna. Samkvæmt tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, sem sjóðurinn heyrir undir, hlutu 12 nýsköpunarverkefni og 12 kynningar- og fræðsluverkefni styrk að þessu sinni.
Þetta er annað árið sem úthlutað er styrkjum úr sjóðnum, en alls bárust 158 umsóknir, þ.e. 86 umsóknir um nýsköpunarverkefni og 72 umsóknir um kynningar- og fræðsluverkefni. Sótt var alls um 1.1 milljarð króna og voru um 15% þeirra sem sóttu um í sjóðinn sem hlutu styrk þetta árið.
Stjórn Loftslagssjóðs tekur ákvarðanir um úthlutanir í samræmi við reglur sjóðsins og er hlutverk sjóðsins að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Styrkir eru meðal annars ætlaðir til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun. Umsækjendur voru ýmist stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrki skv. Rannís:
Nýsköpunarverkefni
| Heiti verkefnis | Aðalumsækjandi | Umsótt upphæð (þ.kr) |
| AlSiment umhverfisvænn arftaki sements | Gerosion ehf. | 9.836 |
| Bokashi fyrir sveitarfélög, ný umhverfisvæn nálgun í úrgangsmálum | Jarðgerðarfélagið ehf. | 10.000 |
| Food waste reduction through data science innovation and impact awareness | GreenBytes ehf. | 10.000 |
| Hermun vatnafars og losunar gróðurhúsalofttegunda í votlendi og framræstu landi | Vatnaskil ehf. | 10.000 |
| Humble – Smáforrit gegn matarsóun | Humble ehf. | 9.720 |
| Kolefnisforði og CO2 flæði úr jarðvegi - samstarfsverkefni um vöktun á völdum landgerðum | Náttúrustofa Suðausturlands ses. | 8.587 |
| Koltvísýringur mældur með flygildi | Neskortes ehf. | 3.935 |
| Matarspor | Efla hf. | 2.880 |
| Skrokk- og kerfishönnun á fjölnota raftvíbytnu | Íslensk NýOrka | 10.000 |
| Vetniskeðjan | Vetnis ehf. | 10.000 |
| Vísindaferðaþjónusta – nýr vettvangur fyrir öflun og miðlun þekkingar um loftslagsmál | Þorvarður Árnason | 10.000 |
| Þurrkun á timbri með jarðvarma | Skógræktin | 4.056 |
Kynningar- og fræðsluverkefni
| Heiti verkefnis | Aðalumsækjandi | Umsótt upphæð (þ.kr) |
| Connecting Loops - Roaming Repair Café | Reykjavík Tool Library ehf. | 5.317 |
| Explain it to me | Íris Indriðadóttir | 160 |
| Full Steam Ahead | Bless Bless Productions sf. | 5.321 |
| Grænir frumkvöðlar framtíðar | Matís ohf. | 9.940 |
| Leggjum línurnar | Finnur Ingimarsson | 2.508 |
| Lífverðir loftslagsins - Menntaverkefni um loftslagsmál | Katrín Magnúsdóttir | 10.000 |
| Loftslagsleiðtoginn: fræðsla, leiðangur og leiðtogaþjálfun | Vilborg Gissurardóttir | 9.987 |
| North Atlantic Triennial | Listasafn Reykjavíkur | 10.000 |
| Ormhildur the Brave - A climate fiction | Compass ehf. | 5.400 |
| Strætóskólinn | Orkusetur | 1.300 |
| Upplýsingapakki um loftslagsmál | Ungir umhverfissinnar | 1.303 |
| Veðurgögn og vísindalæsi | Belgingur, reiknistofa í veðurfræði ehf. | 10.000 |
Birt með fyrirvara um villur.
Hér eru nánari upplýsingar um verkefnin
Frétt á vef Stjórnarráðsins
Frétt á vef Rannís