Fara í efni

Fundargerð 87. fundar stjórnar SSNE - 13. október 2026

13.10.2026

Fundinn sátu: Heimir Örn Árnason, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Sunna María Jónasdóttir, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Katrín Sif Ingvarsdóttir í forföllum Moniku M. Stefánsdóttur, Hermann Ingi Gunnarsson, Knútur Emil Jónasson, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Ólafur Rúnar Ólafsson, Gísli Gunnar Oddgeirsson, Jóhann K. Jóhannsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.

  1. Eimur – samningur 2027-2029
    Lögð fram til samþykktar uppfærð drög að samningi um samstarf um nýsköpunarverkefnið Eimur 2027-2029.
    Stjórn SSNE samþykkir að framlag SSNE inn í samstarfsverkefnið Eim verði 10 m.kr. á ári út samningstímann, 2027-2029. Samstarfsverkefnið verður skilgreint sem áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra. Stjórn felur framkvæmdastóra að undirrita samninginn fyrir hönd samtakanna.
  2. Áhersluverkefni
    Lagt fram yfirlit um áhersluverkefni 2026 og tillögur að verkefnum.
    Stjórn samþykkir eftirfarandi verkefni til viðbótar á árinu 2026:
    Nýsköpunarferðalag Norðurlands 8.000.000 kr.
    Samþætting þjónustu við eldri borgara 5.000.000 kr.
    Öryggi og innviðir – ráðstefna SSNE 1.245.426 kr.
  3. Virkjum íbúana
    Framkvæmdastjóri kynnti verkefnið Virkjum íbúana sem er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.
    Stjórn þakkar fyrir kynninguna og hvetur sveitarfélög innan SSNE til að vekja athygli á verkefninu.
  4. Starfs- og fjárhagsáætlun Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra 2026-2027
    Lögð fram tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra fyrir árið 2027.
    Stjórn samþykkir tillöguna og samþykkir jafnframt að 70 m.kr. verði til úthlutunar við næstu úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.
  5. Minjaráð Norðurlands eystra
    Lagt fram erindi um skipan aðal- og varafulltrúa SSNE í Minjaráð Norðurlands eystra dags. 25. september s.l.. Stjórn SSNE skipar fulltrúa í ráðið samkvæmt gildandi fyrirkomulagi. Erindið var áður afgreitt í tölvupósti.
    Stjórn staðfestir ákvörðun sína um að skipa Knút Emil Jónasson sem aðalfulltrúa og Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur sem varafulltrúa í Minjaráð Norðurlands eystra.
  6. Öryggi og innviðir
    Lögð fram fyrstu drög að dagskrá fyrir ráðstefnuna Öryggi og innviði sem lagt er til að verði haldin 24. febrúar 2027 í Hofi á Akureyri.
    Stjórn felur framkvæmdastjóra að hefja formlega undirbúning að ráðstefnunni og vinna áfram drög að dagskrá í samræmi við umræður á fundinum.
    Jóhann K. Jóhannsson vék af fundi kl. 13:58.
  7. Erindisbréf starfshóps um Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra
    Lögð fram drög að erindisbréfi um Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra og tillaga að skipan starfshópsins.
    Stjórn samþykkir framlögð drög að erindisbréfi og að í starfshópnum sitji:
    Þórhallur Harðarson, formaður Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra
    Katla Eiríksdóttir, forstöðumaður umhverfis- og úrgangsmála Akureyrarbæjar
    Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE
    Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar
  8. Skipan í stjórn og á aðalfund Menningarfélags Akureyrar
    Lagt fram erindi frá Evu Hrund Einarsdóttur framkvæmdastjóra Menningarfélags Akureyrar dags. 25. september 2026 þar sem óskað er eftir að stjórn SSNE skipi fulltrúa í stjórn og fulltrúa á aðalfund Menningarfélags Akureyrar í samræmi við uppfærða skipulagsskrá Menningarfélagsins.
    Stjórn samþykkir að skipa Ágúst Torfa Hauksson sem fulltrúa SSNE í stjórn Menningarfélags Akureyrar og Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur sem varafulltrúa í stjórn. Stjórn felur Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur að vera fulltrúi á aðalfundi Menningarfélags Akureyrar 2026.
  9. Boð á hluthafafund Greiðrar leiðar ehf.
    Hluthafafundur verður haldinn í félaginu Greið leið í október
    Stjórn felur framkvæmdastjóra að fara með atkvæði SSNE á fundinum.
  10. Mál til kynningar
    1. Sterkari byggðir.
    2. Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
    3. Fundargerð stjórnar Markaðsstofu Norðurlands 28. ágúst 2026
  11. Mál til umsagnar
    1. Leit að olíu og gasi, mál 66 (þingmannamál).
    2. Búvörulög og búnaðarlög, mál 76.
    3. Leikskólar (innritun í leikskóla), mál 80 (þingmannamál).
    4. Frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga, mál 99.
    5. Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu) (samráðsgátt).
    6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).

      Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda inn umsagnir um mál e. og f. í samræmi við umræður á fundinum. Stjórn mun ekki senda inn umsagnir um önnur mál að svo stöddu.
      Jóhann K. Jóhannsson kom aftur til fundarins kl. 14:30.
  12. Önnur mál
      1. Næstu fundir stjórnar SSNE
        Samþykkt að desemberfundur stjórnar verði staðfundur.

Fundi slitið kl. 14:40.

Getum við bætt síðuna?