Fara í efni

Fundargerð 84. fundar stjórnar SSNE - 30. júní 2026

30.06.2026

Fundur haldinn þriðjudaginn 30. júní 2026 á Teams. Hófst fundurinn kl. 13.00.

Fundinn sátu: Heimir Örn Árnason, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Jóhann K. Jóhannsson, Sunna María Jónasdóttir, Sindri S. Kristjánsson í forföllum Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur, Monika M. Stefánsdóttir, Hermann Ingi Gunnarsson, Knútur Emil Jónasson, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Gísli Gunnar Oddgeirsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Ólafur Rúnar Ólafsson forfallaðist.

Í upphafi fundarins bauð formaður stjórnarfólk velkomið til fyrsta fundar nýrrar stjórnar og sagðist vonast til þess að samstarfið í stjórninni verði farsælt á kjörtímabilinu líkt og hefð er fyrir hjá samtökunum.

Þá óskaði formaður eftir heimild til að bæta við einum dagskrárlið sem lið 7 á dagskrá sem er Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra. Var það samþykkt samhljóða.

  1. Stjórn skiptir með sér verkum
    Samkvæmt samþykktum SSNE skipar Akureyrarbær formann stjórnar SSNE og hefur Heimir Örn Árnason verið skipaður fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Stjórn skiptir að öðru leiti með sér verkum á fyrsta fundi nýrrar stjórnar eftir sveitarstjórnarkosningar.
    Að tillögu formanns samþykkir stjórn að Helena Eydís Ingólfsdóttir verði skipuð varaformaður stjórnar SSNE.

  2. Fundaáætlun 2026-2027
    Fyrir fundinum lágu drög að fundaáætlun og lagt til að fundir stjórnar verði haldnir að jafnaði annan þriðjudag í mánuði kl. 13-16.
    Stjórn samþykkir framlögð drög að fundaáætlun og felur framkvæmdastjóra að boða stjórnarfundi fram á næsta vor.

  3. Kynning á starfsemi og starfsfólki SSNE
    a) Farið yfir ábyrgð og hlutverk stjórnar: Samþykktir, verklagsreglur og siðareglur.
         Framkvæmdastjóri kynnti gildandi samþykktir, verklagsreglur og siðareglur samtakanna og ábyrgð og hlutverk stjórnar í samræmi við þær.
    b) Sóknaráætlun, áhersluverkefni og starfsáætlun.
        Elva Gunnlaugsdóttir og Díana Jóhannsdóttir, verkefnastjórar hjá SSNE mættu til fundarins undir þessum lið og kynntu gildandi Sóknaráætlun Norðurlands eystra og        áhersluverkefni hennar og Uppbyggingarsjóð Sóknaráætlunar Norðurlands eystra. Framkvæmdastjóri fór yfir og kynnti starfsáætlun SSNE fyrir árið 2026.

  4. Kynning á starfsfólki og helstu verkefnum þeirra.
    Starfsfólk SSNE mætti til fundarins og kynntu sig stuttlega og sín helstu verkefni.
    Stjórn þakkar fyrir kynningarnar.

  5. Haustþing SSNE 2026
    Haustþing SSNE 2026 verður haldið í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík þann 9. september næstkomandi. Lögð fram drög að dagskrá þingsins.
    Stjórn felur framkvæmdastjóra að boða þingið formlega.
  6. Skipan stjórna og nefnda
    Skipa þarf eftirfarandi stjórnir og nefndir:
    a) Markaðsstofa Norðurlands
        Stjórn SSNE samþykkir að tilnefna Heimi Örn Árnason í stjórn Markaðsstofu Norðurlands eystra og Ólínu Ingibjörgu Jóhannesdóttur sem varafulltrúa.

    b)  U
    ppbyggingarsjóður
         Stjórn samþykkir að úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Sóknaráætlunar Norðurlands eystra 2026-2028 skipi:
       
    Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, formaður (Akureyri)
        Kristín Sóley Björnsdóttir (Akureyri)
       Thomas Helmig (Norðurþing)
       
    Guðjón Ólafsson (Fjallabyggð)
       
    Sigríður Friðný Halldórsdóttir (Langanesbyggð)
       
    Sigurður Ingi Friðleifsson (Eyjafjarðarsveit)

      Til vara:
     
    Heimir Örn Árnason (Akureyri)
     
    Guðni Bragason (Norðurþing)
     
    Signý Ormarsdóttir (Þingeyjarsveit)  
     
      Stjórn þakkar fráfarandi úthlutunarnefnd kærlega fyrir þeirra framlag og vel unnin störf á síðustu árum.

    c) 
    Stjórn Eims
         Stjórn samþykkir að skipa Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur í stjórn Eims og Helenu Eydísi Ingólfsdóttur sem varafulltrúa.

    d) Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra   
        Stjórn samþykkir að skipa eftirfarandi í Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra:
        Þórhallur Harðarson, formaður (Akureyrarbær)
        Ásrún Ýr Gestsdóttir (Akureyrarbær)
        Ómar Gunnarsson (Norðurþingi)
        Anna Karen Úlfarsdóttir (Svalbarðsstrandarhreppi)
        Sigríður Friðný Halldórsdóttir (Langanesbyggð)

        Í varastjórn verði:
        Arna Rut Gunnarsdóttir (Akureyrarbær)
        Sindri S. Kristjánsson (Akureyrarbær)
        Ágúst Sigurður Óskarsson (Norðurþingi)
        Jóhanna María Oddsdóttir (Hörgársveit)
        Arna Hjörleifsdóttir (Þingeyjarsveit)

  7. Ráðningarsamningur framkvæmdastjóra
    Ræða þarf ráðningarsamning framkvæmdastjóra, en núgildandi samningur rennur út síðar á árinu. Framkvæmdastjóri vék af fundi undir þessum lið.
    Stjórn samþykkir að fela formanni að ganga frá nýjum ráðningasamningi við framkvæmdastjóra í samræmi við umræður á fundinum.

  8. Áhersluverkefni sóknaráætlunar Norðurlands eystra

    Á 83. fundi stjórnar SSNE var samþykkt 3.500.000 kr. framlag til áhersluverkefnisins Rafrænt og sjálfvirkt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga innan SSNE. Í útreikningi kostnaðarins gleymdist að gera ráð fyrir virðisaukaskatti og er því óskað eftir viðbótarframlagi að upphæð 835.000 kr. til að standa straum af þeim kostnaði.
    Stjórn samþykkir beiðnina.

  9. Mál til kynningar
    a) Greið leið ehf.
    Framkvæmdastjóri kynnti stöðu mála varðandi félagið en nýverið var haldinn aðalfundur og hluthafafundur í félaginu og ákvörðun tekin um slit félagsins

  10.  Mál til umsagnar
    a) Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun (Samráðsgátt)
    Stjórn samþykkir að senda ekki inn umsögn á þessu stigi málsins.

    b) Drög að reglugerð um Byggðastofnun (Samráðsgátt)
    Stjórn samþykkir að senda ekki inn umsögn á þessu stigi málsins.

    c)  Aðgerðaáætlun stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni 2026-2030 (Samráðsgátt)
    Stjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn og felur framkvæmdastjórn að skila inn fyrir hönd stjórnar á Samráðsgátt.

    d) Hvítbók um Byggðamál (Samráðsgátt)
    Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að umsögn fyrir næsta fund stjórnar.

    e) Efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi (Samráðsgátt)
    Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að umsögn fyrir næsta fund stjórnar.

    f) Drög að reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu (Samráðsgátt)
    Stjórn samþykkir að senda ekki inn umsögn .
  11. Önnur mál
    a) Ályktun stjórnar SSNE um uppbyggingu millilandaflugs um Akureyrarflugvöll
    Stjórn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) ítrekar mikilvægi þess að Akureyrarflugvöllur verði áfram byggður upp sem ein af alþjóðlegum gáttum Íslands. Jafnframt leggur stjórn SSNE ríka áherslu á að fjármögnun Flugþróunarsjóðs verði tryggð til framtíðar.

    Flugþróunarsjóður er lykilforsenda þess að byggja upp nýjar flugleiðir og efla millilandaflug um Akureyri og Egilsstaði. Ljóst er að án áframhaldandi viðbótarframlags ríkisins að lágmarki 100 m.kr. á ári mun sjóðinn skorta fjármagn strax á árinu 2027. Slík staða myndi stöðva frekari uppbyggingu og veikja samkeppnisstöðu Norðurlands sem áfangastaðar og atvinnusvæðis og Íslands í heild.

    Öflugt millilandaflug um Akureyri felur í sér veruleg sóknartækifæri fyrir íslenskt samfélag. Það styður við aukna verðmætasköpun, lengir ferðatímabil, bætir aðgengi að erlendum mörkuðum og stuðlar að jafnvægi í dreifingu ferðamanna um landið. Jafnframt dregur slík uppbygging úr álagi á Keflavíkurflugvöll og styrkir innviði og atvinnulíf á landsbyggðinni. Uppbygging alþjóðlegrar fluggáttar á Akureyri er í samræmi við atvinnustefnu stjórnvalda um aukna verðmætasköpun, fjölbreyttara atvinnulíf og markvissa byggðaþróun.

    Stjórn SSNE skorar á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að fela rekstur, uppbyggingu og markaðssetningu Akureyrarflugvallar sérstökum aðila, stjórn eða félagi, með skýrt hlutverk og ábyrgð. Nauðsynlegt er að tryggja slíkum aðila stöðugt og fyrirsjáanlegt fjármagn til að ná fram markmiðum um öfluga alþjóðlega fluggátt á Norðurlandi. Stjórn SSNE áréttar að trygg fjármögnun og markviss uppbygging millilandaflugs um Akureyri er fjárfesting í aukinni verðmætasköpun, sterkari byggðum og sjálfbærari nýtingu innviða landsins.
    Stjórn samþykkir framlagða bókun og felur framkvæmdastjóra að koma henni á framfæri við viðeigandi aðila.

Fundi slitið kl. 15:23.

Getum við bætt síðuna?