Fundargerð 81. fundar stjórnar SSNE - 5. mars 2026
Fundur haldinn fimmtudaginn 5. mars 2026 á skrifstofu Þingeyjarsveitar (Þingey) á Laugum og hófst fundurinn kl. 11.
Fundinn sátu: Lára Halldóra Eiríksdóttir, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Guðjón M. Ólafsson, Jón Þór Benediktsson í forföllum Axels Grettissonar, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir í forföllum Hildu Jönu Gísladóttur, Katrín Sif Ingvarsdóttir, Hermann Ingi Gunnarsson, Jóna Björg Hlöðversdóttir, Sigurður Þór Guðmundsson í forföllum Mirjam Blekkenhorst, Þórunn Sif Harðardóttir (á Teams), Gísli Gunnar Oddgeirsson í forföllum Þrastar Friðfinnssonar og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður hóf fundinn á að þakka Þingeyjarsveit fyrir móttökurnar. Formaður óskaði einnig eftir því að bæta einu máli á dagskrá með afbrigðum sem er fjárhagsáætlun 2026-2030. Var það samþykkt og málinu bætt við sem 4. lið á dagskrá.
- Ársþing SSNE 2026
Lögð fram drög að dagskrá Ársþings SSNE 2026 sem haldið verður 26. mars næstkomandi í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drögin áfram í samræmi við umræður á fundinum og senda út til þingfulltrúa eigi síðar en 10 dögum fyrir þing. - Loftslagsstefna Norðurlands eystra og sameiginlegt loftslagsbókhald
Loftslagsstefna Norðurlands eystra hefur nú fengið umfjöllun í öllum sveitarfélögum innan SSNE. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, verkefnastjóri SSNE mætti til fundarins undir þessum lið og kynnti samantekt á niðurstöðum sveitarfélaganna og þær ábendingar sem bárust.
Stjórn SSNE þakkar Sigurborgu fyrir kynninguna og samþykkir stefnuna fyrir sitt leiti með þeim breytingum sem urðu á fundinum og leggur til að hún verði lögð fram til samþykktar á Ársþingi SSNE 2026. - Ársreikningur 2025
Lögð fram drög að ársreikningi SSNE árið 2025. Ársreikningurinn er að mestu í takt við fjárhagsáætlun sem samþykkt var á haustþingi SSNE 2024 en tap varð af rekstri síðasta árs í samræmi við áætlun. Rögnvaldur Guðmundsson, verkefnastjóri SSNE og Níels Guðmundsson, endurskoðandi frá ENOR mættu til fundarins undir þessum lið.
Stjórn staðfestir ársreikning 2025 fyrir sitt leiti og undirritar hann rafrænt. Stjórn vísar ársreikningi 2025 til ársþings SSNE til umfjöllunar. - Fjárhagsáætlun SSNE 2026-2030
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2026-2030. Rögnvaldur Guðmundsson verkefnastjóri SSNE sat fundinn undir þessum lið og kynnti fjárhagsáætlunina.
Stjórn samþykkir fjárhagsáætlunina fyrir sitt leiti og vísar fjárhagsáætluninni til umfjöllunar á ársþingi SSNE. - Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra
Lagður fram tölvupóstur frá formanni stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál varðandi tillögu stjórnar SSNE um að setja 29 m.kr. af viðaukaframlagi í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra með þeim tilmælum að fjármagnið verði nýtt á árinu 2026. Undir þessum lið var einnig lögð fram tvær tillögur að áhersluverkefni.
Stjórn felur formanni og varaformanni að vinna tillögur að áhersluverkefnum út frá áherslum Sóknaráætlunar Norðurlands eystra í samráði við framkvæmdastjóra og leggja fyrir næsta stjórnarfund.
Stjórn samþykkir jafnframt áhersluverkefnið Allir með 2.000.000,- kr. - Tilnefning fulltrúa í samráð um hreindýraveiðar
Lagður fram tölvupóstur Bjarna Jónassyni, fyrir hönd Náttúruverndarstofnunar, dagsettur 12. febrúar s.l. þar sem óskað er eftir því að stjórn SSNE skipi fulltrúa til þátttöku í vinnu við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir hreindýr.
Stjórn samþykkir að tilnefna Júlíus Sigurbjartsson, Langanesbyggð í hópinn fyrir hönd Norðurþings og Langanesbyggðar. - Skipan í stjórn Fjölsmiðjunnar
Ársfundur Fjölsmiðjunnar verður haldinn 31. mars næstkomandi og þarf að skipa fulltrúa SSNE í stjórn Fjölsmiðjunnar.
Stjórn samþykkir að tilnefna Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur til setu í stjórn Fjölsmiðjunnar. - Púlsinn – Norðurland eystra í tölum
Lagt fram til kynningar fyrsta tölublað Púlsins – Norðurland eystra í tölum en það er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra um auknar greiningar á stöðu atvinnulífs og samfélags á Norðurlandi eystra. Framkvæmdastjóri sagði frá útgáfunni en ætlunin er að Púlsinn komi út reglulega á árinu 2026.
Lagt fram til kynningar. - Fundur með heilbrigðisráðherra
Stjórn SSNE mun funda með heilbrigðisráðherra um stöðu Sjúkrahússins á Akureyri og stöðu heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi eystra 11. mars næstkomandi. Á fundinum voru lögð fram til drög að minnisblaði um umfjöllunarefni fundarins.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drögin áfram í samræmi við umræður á fundinum og senda til heilbrigðisráðuneytisins fyrir fundinn. - Mál til kynningar
- Mál til umsagnar
- Saman gegn sóun – drög að aðgerðaráætlun (áður samþykkt í tölvupósti).
- Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignaskatti (Samráðsgátt).
- Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga.
- Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks (Samráðsgátt).
- Sveitarstjórnarlög.
Stjórn staðfestir umsögn um mál a., og felur framkvæmdastjóra að vinna umsagnir um mál b., d., og e.
- Önnur mál
-
- Skýrsla framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjóri fór yfir það helsta úr starfsemi samtakanna frá síðasta stjórnarfundi. - Næsti fundur stjórnar
Formanni og framkvæmdastjóra falið að finna tíma fyrir næsta stjórnarfund.
- Skýrsla framkvæmdastjóra
-
Fundi slitið kl. 15:10.