Fara í efni
Umsóknarfrestur: Vísindasjóður OR

Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á starfssviði Orkuveitu Reykjavíkur með áherslu á þau heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem eru í forgangi hverju sinni í samræmi við stefnu fyrirtækisins.
Að þessu sinni er lögð áhersla á eftirfarandi heimsmarkmið:

  • Hreint vatn og hreinlætisaðstaða
  • Sjálfbær orka
  • Aðgerðir í loftlagsmálum
  • Ábyrg neysla og framleiðsla
  • Jafnrétti kynjanna

Auglýst er eftir umsóknum um styrki í tveimur flokkum, námsstyrki (tæknifræði-, meistara- og doktorsnemar) og verkefnastyrki. Hámark námsstyrkja er 1.250.000 kr. fyrir tæknifræði- og meistaranema og 5.000.000 kr. fyrir doktorsnema. Hámark verkefnastyrkja er 8.000.000 kr. Umsækjendur leggja fram lýsingu á rannsóknaverkefni sínu, gera grein fyrir tímalínu og kostnaði, og rökstyðja hvernig verkefnið tengist starfsviði Orkuveitu Reykjavíkur og þeim heimsmarkmiðum sem fyrirtækið leggur áherslu á.

Ákvörðun um styrki er tekin af stjórn VORs að fengnu áliti fagráðs sérfræðinga innan eða utan Orkuveitu Reykjavíkur. Í stjórn VORs sitja Gylfi Magnússon stjórnarformaður OR, Sævar Freyr Þráinsson forstjóri OR og Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.

Umsóknargátt sjóðsins opnar 2. júní 2023 og lokar 18. ágúst 2023. Áætlað er að tilkynna úthlutun 2023 í nóvember. Fyrirspurnir má senda á netfangið vor@or.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Allar upplýsingar má finna hér.

Umsóknarfrestur: Vísindasjóður OR