Fara í efni
Tónlistarsjóður

Fyrir hverja?

Tónlistarfólk, hljómsveitir, kóra og aðra er koma að tónlistarflutningi.

Til hvers?

Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, en markaðs- og kynningardeild veitir styrki til kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki hér á landi og erlendis.

Úthlutun

Erfitt er að tímasetja úthlutun en stefnt er að fyrri hluta júní nk.

Umsóknarfrestur

Maí og nóvember ár hvert.

Næsti umsóknarfrestur er 2. nóvember 2020, kl. 16:00.

Umsóknarkerfi opnar að jafnaði sex vikum fyrir umsóknarfrest.

EN


Hvert er markmiðið?

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þess skv. lögum nr. 76/2004 og reglum um Tónlistarsjóðs nr. 125/2005 .

Hverjir geta sótt um?

Aðstandendur tónlistarverkefna geta sótt um styrk.

Hvað er styrkt?

Veittir eru styrkir til almennrar tónlistarstarfsemi og til kynningar og markaðsetningar á tónlist og tónlistarfólki. Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs í senn. Að jafnaði er hvorki gert ráð fyrir styrkveitingum til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað.

Sjá nánar hvað er styrkt og hvað ekki? í leiðbeiningar vegna umsókna.

Skilyrði úthlutunar

Umsóknum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís (sjá leiðbeiningar) fyrir lok umsóknarfrests. Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs í senn.

Hafi umsækjandi þegið styrk úr Tónlistarsjóði þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis til að ný umsókn komi til greina, það sama á við um verk í vinnslu þá skal umsækjandi skila inn greinargerð um stöðu verksins.

Hlutverk Rannís

Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, Rannís, er að sjá um umsýslu Tónlistarsjóðs fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Tónlistarsjóður