Fara í efni
Samfélagsstyrkir Norðurork

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna vegna ársins 2023.

Veittir eru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála. Markmið með styrkjunum er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Styrkir eru fyrst og fremst veittir til starfsemi á starfssvæði Norðurorku hf. en einnig hafa verið veittir styrkir til verkefna sem taka til landsins alls.

Öllum umsóknum verður svarað og er umsóknarfrestur til 15. nóvember 2022.

Styrkumsóknum skal skila á rafrænu formi, með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Umsókn um samfélagsstyrk

Samfélagsstyrkir Norðurork