Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóði Öxarfjarðar og Raufarhafnar

Deildará við Raufarhöfn
Deildará við Raufarhöfn

Opið fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóði Öxarfjarðar og Raufarhafnar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Frumkvæðissjóðum Raufarhafnar og framtíðarinnar II og Öxarfjarðar í sókn II.
Umsóknarfrestur er til kl. 13:00 mánudaginn 16. febrúar 2026


Veittir verða verkefnastyrkir og ráðgjöf á vegum tilraunaverkefnissins Brothættra byggða II (BbII), sem Byggðastofnun, Norðurþing og SSNE standa að. 


Í umsókn skal koma fram hvernig verkefnið hefur samhljóm við framtíðarsýn BbII, við hvaða meginmarkmið viðkomandi svæðis það styður og hvernig. Verkefnin þurfa fyrst og fremst að vera til þess fallin að efla samfélagið.

Meginmarkmið svæða:

Raufarhöfn & framtíðin
  • Sérstæður áfangastaður
  • Traustir grunnatvinnuvegir
  • Blómstrandi menntun
  • Öflugir innviðir
Öxarfjörður í sókn
  • Framandi áfangastaður
  • Framsækni í matvælaframleiðslu
  • Uppbyggilegt samfélag
  • Öflugir innviðir

     

Nanna Steina Höskuldsdóttir nanna@ssne.is og Einar Ingi Einarsson einar@nordurthing.is starfa sem verkefnisstjórar á svæðinu í heild. Þau bjóða bæði upp á viðtalstíma og ráðgjöf varðandi umsóknarskrif eða hugmyndavinnu.

Getum við bætt síðuna?