Fara í efni

Ráðgjöf vegna Uppbyggingarsjóðs víða um Norðurland eystra

Ráðgjöf vegna Uppbyggingarsjóðs víða um Norðurland eystra

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra er opinn fyrir umsóknir og á næstu vikum verður starfsfólk SSNE með kynningar, viðveru og ráðgjöf á nokkrum stöðum á starfssvæðinu. Markmiðið er að auðvelda umsækjendum að leita upplýsinga og ráðgjafar við undirbúning umsókna.

Dagskráin framundan er eftirfarandi:

  • 28. september kl. 12:00, Akureyri: Menningarsúpa Listasafnsins á Akureyri. Fulltrúar SSNE kynna Uppbyggingarsjóð og þá möguleika sem sjóðurinn býður upp á.
  • 29. september kl. 12:00: Rafrænn kynningarfundur SSNE um Uppbyggingarsjóð.
  • 1. október kl. 9:30–10:30, Kópasker: Viðvera og ráðgjöf í Öxi.
  • 1. október kl. 12:00–13:00, Þórshöfn: Viðvera og ráðgjöf í Kistunni.
  • 1. október kl. 15:00–16:00, Raufarhöfn: Viðvera og ráðgjöf í Ráðhúsinu.
  • 1. október kl. 16:00–17:00, Þingeyjarsveit: Viðvera og ráðgjöf í Þingey.
  • 8. október, Dalvík: Menningarsúpa á kaffihúsinu Gísla, Eiríki og Helga og viðvera starfsfólks SSNE í kjölfarið.
  • 12. október kl. 9:30–11:00, Siglufjörður: Viðvera og ráðgjöf hjá AtWork/Regus, Túngötu 3, 2. hæð.

Ráðgjöf einnig í boði utan viðburða

Umsækjendur þurfa ekki að bíða eftir viðveru á sínu svæði til að fá aðstoð. Starfsfólk SSNE veitir ráðgjöf vegna Uppbyggingarsjóðs og hægt er að hafa samband til að fá leiðbeiningar og aðstoð við undirbúning umsókna.

Við hvetjum áhugasama umsækjendur til að nýta sér kynningarfundinn, viðveruna og ráðgjöfina og leita eftir aðstoð tímanlega við undirbúning umsókna.

Getum við bætt síðuna?