Fara í efni

Menning í Fjallabyggð

Menning í Fjallabyggð

SSNE hélt Menningarsúpu á Siglufirði þar sem fjallað var um stöðu menningar og lista í Fjallabyggð og á Norðurlandi eystra. Á fundinum var farið yfir Uppbyggingarsjóð, nýlegar breytingar á úthlutunarreglum og umsjón sjóðsins. Jafnframt var kynnt nýtt áhersluverkefni sem leggur aukna áherslu á fjármögnun menningar- og listviðburða í næstu úthlutun.

Líflegar og uppbyggilegar umræður sköpuðust um stöðu menningar og lista í sveitarfélaginu og landshlutanum í heild. Rætt var um mikilvægi Uppbyggingarsjóðs og nauðsyn þess að efla fjármögnun bæði innan sjóðsins og til annarra menningarverkefna.

Í tengslum við heimsóknina fóru fulltrúar SSNE í tvær heimsóknir. Annars vegar var farið í Brimsali á Ólafsfirði þar sem kynnt var sú metnaðarfulla aðstaða sem þar hefur verið byggð upp. Hins vegar var farið í Alþýðuhúsið á Siglufirði þar sem kynnt var starfsemi hússins, skoðuð vinnustofa Aðalheiðar og sýning sem þar stóð yfir í sýningarými hússins.

Getum við bætt síðuna?