Fara í efni

Hvað gerir Uppbyggingarsjóður raunverulega?

Hildur menningarfulltrúi SSNE og Sæunn sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri vinna …
Hildur menningarfulltrúi SSNE og Sæunn sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri vinna að fyrirlestri í upptökuveri Háskólans á Akureyri

Hvað gerir Uppbyggingarsjóður raunverulega?

Menning og skapandi greinar (MSG) leika mikilvægt hlutverk í tæknibyltingu og alþjóðavæðingu samtímans. Fræðafólk í Evrópu hefur í auknum mæli beint athygli sinni að mikilvægi staðbundinna áhrifa MSG, ekki síst í landsbyggðum. Samspil MSG og nýsköpunar er einnig í brennidepli þar sem víðtæk samfélagsleg áhrif eru skoðuð samhliða tækniþróun.

Í apríl var nýju námskeiði hleypt af stokkunum sem er afrakstur samvinnuþróunarverkefnis starfsfólks Háskólans á Akureyri, Háskólans á Bifröst og Byggðastofnunar. Námskeiðið er spennandi nýjung en ekki hefur áður verið boðið upp á sambærilegt námskeið á Íslandi.

„Það er skortur á rannsóknum á áhrifum skapandi greina í landsbyggðum og von okkar sem komu að því að hanna námskeiðið er að á námskeiðinu muni kvikna hugmyndir að rannsóknarefni sem nemendur geti þá skoðað á meistara- og doktorsstigi.“ segir Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá RHA sem var í samstarfshópnum. Hún bætir við,

námskeiðið er hannað eftir því sem við töldum að þyrfti á Íslandi. Þörfin byggir að einhverju leyti á greiningu í skýrslu Rannsóknarseturs skapandi greina þar sem þekkingargöt voru kortlögð.

Námskeiðið er liður í stærra verkefni sem stutt er af Samstarfssjóði háskólanna og er ætlað að efla rannsóknavirkni á meistara- og doktorsstigi á sviði atvinnulífs menningar og skapandi greina.

Aðrir samstarfsaðilar eru Háskóli Íslands og Hagstofa Íslands og stendur fyrir dyrum að þróa námskeið um hagtölu- og hagskýrslulæsi með þeim auk þess sem möguleikar á samstarfi við stofnanir og einkafyrirtæki um stuðning við doktorsrannsóknir verða kortlagðir.

Sérfræðingar víða að leggja verkefninu lið

Sæunn segir mikilvægt að vita meira um áhrif skapandi greina í landsbyggðum og hvernig hægt sé að styðja betur við þær. Þá segir hún samstarfið hafa farið vel af stað og gleðilegt hve mörg sem vinna á sviði skapandi greina á Norðurlandi voru tilbúin til að taka þátt í verkefninu. Má þar nefna Hildi Halldórsdóttur menningarfulltrúa SSNE, Þorvald Bjarna Þorvaldsson, tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar, Mörtu Nordal, leikhússtjóra Menningarfélags Akureyrar og Kjartan Sigurðsson, lektor við Viðskiptadeild sem mun halda fyrirlestra um nýsköpun og skoða nýsköpunarhugtakið í tengslum við menningu og skapandi greinar.

„Ég held að við sjáum öll hve áhrif skapandi greina geta verið mikil á landsbyggðunum, til dæmis með nýlegum tökum á True Detective á Dalvík og í Keflavík og áhrif þess hvað varðar áhuga á Íslandi. Á námskeiðinu verður einmitt fyrirlestur um áhrif kvikmyndagerðar í landsbyggðum og þar fer Vera Vilhjálmsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Ferðamála, yfir kvikmyndatengda ferðaþjónustu og helstu birtingarmyndir hennar og við fáum einnig innlegg frá Leifi Dagfinnssyni, stofnanda True North.“ segir Sæunn aðspurð um einn af þeim hvötum sem urðu tilurð þessa námskeiðs.

Lesa má nánar um námskeiðið á vef Háskólans á Akureyri.

Getum við bætt síðuna?