Fara í efni

Skemmtiferðaskip á Norðurlandi eystra

Markmið verkefnisins er að skapa aukin verðmæti í móttöku skemmtiferðaskipa í sátt við samfélög og náttúru. Hámarka ávinning af móttöku skipafarþega, fjölga leiðangursskipum (minni skemmtiferðaskipum) og fjölga skipakomum til minna sóttra hafna.

Auka þarf samstarf og bæta skipulag við móttöku farþega skemmtiferðaskipa á Norðurlandi með það að markmiði að auka verðmætasköpun ferðaþjónustuaðila og sveitarfélaga auk þess að efla þjónustu við skipafélög og farþega. Verkefnið er tvíþætt:
 - Áfangastaðaþróun þar sem gerð verður greining á stöðu innviða, þjónustu og möguleikum fyrir skemmtiferðaskip í landshlutanum.
 - Markaðssókn með áherslu á minni leiðangursskip, fjölgun minni komuhafna og fjölgun skipakoma auk lengingar ferðatímabils. Í markaðssókninni verður áhersla lögð á að kynna fleiri áhugaverða áfangastaði fyrir gestum.

Ávinningurinn er efnahagslegur og samfélagslegur, þ.e. að móttaka skemmtiferðaskipa skapi verðmæti í sátt við samfélag og náttúru.Samræmdar upplýsingar um innviði, þjónustuframboð og möguleika fyrir skemmtiferðaskip á Norðurlandi.

Framlag úr Sóknaráætlun 2026: 3.500.000 kr. 

Getum við bætt síðuna?