Rafrænt og sjálfvirkt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga innan SSNE
Markmið verkefnisins er að:
Innleiða samræmda, rafræna og sjálfvirka lausn fyrir losunarbókhald frá rekstri allra sveitarfélaga innan SSNE.
Spara sveitarfélögunum umfangsmikla vinnu við flokkun og útreikninga á kolefnisspori frá rekstri.
Auðvelda sveitarfélögum eftirfylgni með losunarmarkmiðum.
Auka sjálfvirkni í skýrslugerð og spara vinnu við að safna saman upplýsingum fyrir sjálfbærniskýrslugerð og grænt bókhald.
Auka gæði og gagnsæi í loftslagsaðgerðum sveitarfélaga.
Gera reglubundna eftirfylgni mögulega og auka þannig aðhald í rekstri sveitarfélaga.
Tryggja samanburðahæfni milli sveitarfélaga og auka samkeppni milli þeirra í loftslagsverkefnum sem draga úr losun.
Gera sveitarfélögum kleift að forgangsraða loftslagsaðgerðum eftir áhrifum þeirra á losun.
Einfalda skil sveitarfélaga til Umhverfisstofnunar um árangur þeirra í loftslagsmálum.
Framlag úr Sóknaráætlun 2026: 3.500.000 kr.