Fara í efni

Menningarbyggðin

Markmið Menningarbyggðarinnar er tvíþætt, að auka fjármagn til menningarviðburða og vekja aukna athygli á menningarviðburðum á Norðurlandi eystra.

 Aukið fjármagn fer í gegnum farveg Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra, eyrnamerkt menningar- og menningarviðburðarverkefnum.  Þar með verður hægt að styðja en frekar við menningarverkefni á árinu 2027 en einnig er hluti verkefnisins að auka sýnileika þeirra. Notað verður dagatal Markaðsstofu Norðurlands, en þar er hægt að draga fram ákveðna viðburði á ákveðnu svæði. Viðburðunum  verður svo miðlað á vefsvæði SSNE og sveitarfélaga.

Framlag úr Sóknaráætlun 2026: 10.000.000 kr. 

Getum við bætt síðuna?