Fara í efni

Farsældardagur 2026 - Málþing

Markmið verkefnisins er að Farsældarráð Norðurlands eystra standi fyrir farsældardegi. Málþing þar sem ýmsar kynningar og vinnustofur verða á dagskrá til að beina athyglinni að farsæld barna og fjölskyldna þeirra.

Þann 4. september nk. verður haldin viðburður þar sem farsæld barna á Norðurlandi eystra verður í brennidepli með erindum, fræðslu og vinnustofum. Allt þetta er liður í að styðja við starfsfólk sveitarfélaga og þjónustustofnana ríkis í farsældarmálum, auka ásýnd og kveikja áhuga almennings. Niðurstöður vinnustofa verður nýtt sem viðbótarefni í það ferli sem stendur yfir hjá farsældarráði að búa til áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna til fjögurra ára á Norðurlandi eystra.

Framlag úr Sóknaráætlun 2026: 1.500.000 kr. 

Getum við bætt síðuna?