Böðin - Northern Baths
Markmið verkefnisins er að uppfært vörumerkið Northern Baths (Böðin – Northern Baths) í takti við nýjungar í fjárfestingu og UNESCO skráningu.
Á starfssvæðinu eru 3 af 8 starfandi baðlónum og á þriðja tug sundlauga og því er styrkurinn mikill í sögulegu samhengi. Greiningar sýna að samkeppnishæfni innanlands og gagnvart helstu samkeppnislöndum er ekki nægilega góð.Verkefnið styður við heilsársvöruframboð á svæðinu og er sérstaklega sterkt yfir vetrartímann.
Afurð verkefnisins verður vel framsett söluhandbók sem er notuð af endursöluaðilum við kynningu. Efnisframleiðsla klárist á faglegan hátt og afurðin er nýtt af fjölbreyttum hóp. Markaðssókn sem skilar nýjum viðskiptavinum utan háannar. Markaðssókn sem gerir baðstaði á svæðinu ofarlega í hugum neytenda með því að hámarka þau gæði sem fyrir eru. Fjárfestingin á svæðinu er mikil í heilsutengdri ferðaþjónustu en markaðsinnviðir og fjárfesting í þeim hjá samkeppnissvæðum er mun meiri og því er tækifæri sókn.
Framlag úr Sóknaráætlun 2026: 3.500.000 kr.