Fara í efni

Allir með æfingar á Norðurlandi eystra

Markmið verkefnisins er að skapa aðgengilegan og jákvæðan vettvang fyrir börn á grunnskólaaldri með stuðningsþarfir til þátttöku í íþróttastarfi í sínu nærumhverfi. Æfingarnar eru sérstaklega hugsaðar fyrir börn sem þurfa meiri stuðning, njóta sín betur í minni hópum og hafa aðgang að fleiri þjálfurum.

Verkefnið Allir með æfingar á Norðurlandi eystra snýr að því að halda aðgengilegar og sérsniðnar íþróttaæfingar fyrir börn á grunnskólaaldri með stuðningsþarfir, þar sem lögð er áhersla á jákvætt, öruggt og styðjandi umhverfi þar sem öll börn fá að njóta sín á sínum forsendum. Á grundvelli góðrar reynslu af verkefninu veturinn 2025–2026, þar sem haldnar voru æfingar á Húsavík, Dalvík, í Fjallabyggð og á Akureyri, er stefnt að því að efla verkefnið enn frekar og auka umfang þess á komandi tímabili. Æfingar veturinn 2025–2026 voru fjármagnaðar með stuðningi frá UMFÍ, þar sem hluti þess fjármagns sem íþróttahéruðin fengu til sameiginlegra verkefna var nýttur til að halda Allir með æfingar. Fyrirhugað er að hvert íþróttahérað haldi 4 æfingar á sínu starfssvæði, samtals 16 æfingar yfir veturinn.
Verkefnið miðar að því að:
•Að auka þátttöku barna með stuðningsþarfir í skipulögðu íþróttastarfi
•Að skapa regluleg og aðgengileg tækifæri til hreyfingar í nærumhverfi
•Að styðja við fjölskyldur og efla samfélagslega þátttöku

Framlag úr Sóknaráætlun 2026: 2.000.000 kr.

Getum við bætt síðuna?