Fara í efni

Uppbyggingarsjóður

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja við verkefni sem falla að Sóknaráætlun Norðurlands eystra í þremur flokkum, atvinnu og nýsköpun, menningu og stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) annast umsýslu sjóðsins í landshlutanum og er auglýst einu sinni á ári eftir umsóknum um styrki.

Hér fyrir neðan getur þú lesið hagnýtar upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og umsóknarferlið sjálft.

Hvernig verkefni eru styrkhæf?

Veittir eru styrkir úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra í eftirfarandi þremur flokkum:

  • Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir á sviði menningar
  • Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Í takt við Sóknaráætlun landshlutans eru sérstakar áherslur:
Áhersla menningarverkefna: Áhersla á umhverfismál eða samfélagslegan fjölbreytileika.
Áhersla atvinnu og nýsköpunarverkefna: Áhersla á bætta nýtingu auðlindastrauma svæðisins.

Umsækjendum er bent á að kynna sér vel og styrkja þannig umsóknir sínar:

Hvar sæki ég um?

Sótt er um á rafrænu umsóknarformi Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra.

    • Nauðsynlegt er að skráning í umsóknarkerfi sé á auðkenni umsækjanda.
    • Umsóknir fyrir lögaðila (félög og fyrirtæki) þurfa  að vera skráðar á kennitölu viðkomandi. Því er nauðsynlegt að sækja um á íslykli eða rafrænum skilríkjum viðkomandi aðila. 
    • Það getur verið gagnlegt að setja verk- og kostnaðaráætlun upp í Excel áður en fyllt er inn í þann hluta í umsóknargáttinni. Til aðstoðar við það má finna skapalón fyrir það (SSNEXCEL) undir Leiðbeiningar hér neðar.

Hvernig er ferlið ef verkefni hlýtur styrk

Ef stiklað er á stóru eru skrefin þessi:

  1. Gerður er skriflegur samningur.
  2. Rafræn úthlutunarhátíð fer fram 13. desember 2023
  3. Vinnustofa styrkþegar verður haldin í hádeginu mánudaginn 18. desember 2023. 
  4. Verkefni þarf að hefjast innan 3 mánaða eftir undirritun.
  5. Í kynningu verkefnisins skal stuðningi Sóknaráætlunar Norðurlands eystra ávallt getið. Almennt skal miða við að viðburðir eða verkefni styrkt úr Sóknaráætlun séu auglýst á öllu starfssvæði SSNE. Hér má sækja merki Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.
  6. Styrkþegi skilar framvinduskýrslu samkvæmt samkomulagi í samningi.
  7. Styrþegi skilar lokaskýrslu þegar verkefni er lokið.

Athugið að allar beiðnir og breytingar þurfa að berast starfsfólki SSNE.

Upptaka af vinnustofu styrkhafa Uppbyggingarsjóðs

Leiðbeiningar 

Ráðgjöf Uppbyggingarsjóðs - þarftu aðstoð?

 Allt starfsfólk SSNE veitir ráðgjöf í tengslum við verkefni í Uppbyggingarsjóð. Þú getur pantað hjá þeim fjar- eða staðfundi.

Umsjónaraðilar Uppbyggingarsjóðs eru staðsettir á Akureyri og Húsvík og er hægt að panta hjá þeim stað- eða fjarfundi: