Gígur
- Gígur, Skútustöðum, 660 Mývatn
- Leigutími: Samkomulag
- Fundaraðstaða: Já
- Stærð rýmis: Skrifborð til leigu, skrifstofur og fundarými
- Næðisrými: Já
- Nánari upplýsingar: Hulda María Þorláksdóttir (hulda.m.thorlaksdottir@nattura.is)
Gígur – vinnuklasi stendur við bakka Mývatns. Á Gíg er góð vinnuaðstaða, notalegt og gott andrúmsloft, fallegt útsýni og nálægð við náttúruna áþreifanleg. Hægt er að njóta göngu um Skútustaðagíga í hádeginu eða koma blóðflæðinu af stað á gönguskíðum á vatninu yfir vetrartímann.
Á Gíg er hægt að leigja aðgang að vinnuborði til lengri og skemmri tíma, bæði til einstaklinga, fyrirtækja og hópa. Með leigusamningum fylgir jafnframt aðgengi að funda- og næðisrýmum, góðu kaffi og kaffistofu. Húsið hefur nýlega verið tekið í gegn og er öll aðstaða til fyrirmyndar. Fjölbreytileg starfsemi er í húsinu og þar vinna að staðaldri tíu yfir vetrartímann en hópurinn rúmlega tvöfaldast yfir sumartímann. Í húsinu eru einnig gestastofa friðlýstra svæða í Þingeyjarsveit og norðurhálendis Vatnajökulsþjóðgarðs ásamt rannsóknarstofu Náttúrufræðistofnunar. Flóran í húsinu er því fjölbreytt og umræðurnar yfir kaffibollanum í takt við það.