Fara í efni

Fagráð menningar - 2. fundur

17.05.2015

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra

Fagráð menningar

2. fundur.

Árið 2015, sunnudaginn 17. maí kl. 13:00, kom Menningarráð Eyþings saman til fundar að Hótel Natur Svalbarðsströnd. Mætt voru: Arnór Benónýsson formaður, Kjartan Ólafsson og Sóley Björk Stefánsdóttir. Einnig var mætt Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi.

Fundarsetning:

Formaður, Arnór Benónýsson, bauð fundarmenn velkomna til fundar og  gengið var til dagskrár.

  1. Úthlutun verkefnastyrkja

Formaður gerði grein fyrir hvaða fjármagn menningarhluti Uppbyggingarsjóðs hefði til ráðstöfunar. Heildarfjármagn til ráðstöfunar eru 34 milljónir, þar af til verkefnastyrkja á sviði menningar 22. milljónir króna, til stofn- og rekstrarstyrkja 12. milljónir króna. Við þessa upphæð bætast niðurfelldir og lækkaðir styrkir að upphæð 1.650 þúsund krónur króna

 

Borist höfðu 93 umsókn til um verkefnastyrki og 15 um stofn- og rekstarstyrki. Samtals sótt um upphæð  kr.  85.349.599.- Þar af  71.709.514.- til verkefnastyrkja og 15.640.085.- til stofn- og rekstrarstyrkja.

 

Um vanhæfi:

Arnór kvaðst vanhæfur í umsókn nr:  55

Kjartan kvaðst vanhæfur í umsókn nr: 39

Sóley Björk kvaðst vanhæf í umsókn nr: 89

Unnið var að flokkun og yfirferð umsókna að fundarlokum.

Fleira ekki gert – fundið slitið til kl. 22.00

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir fundarritari

 

Getum við bætt síðuna?