Fara í efni

Fagráð menningar - 17. fundur

12.01.2019

17. fundur.

 

Árið 2019, laugardagurinn 12. janúar kl. 10:30, kom fagráð menningar saman til fundar að Hótel Natur, Þórisstöðum. Mætt voru: Hulda Sif Hermannsdóttir formaður, Sólveig Elín Þórhallsdóttir, Líney Sigurðardóttir og Guðni Bragason. Magnús Guðmundur Ólafsson forfallaðist. Einnig var mætt Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnisstjóri menningarmála hjá Eyþingi.

 

Fundarsetning:

Formaður, Hulda Sif Hermannsdóttir, bauð fundarmenn velkomna til fundar og gengið var til dagskrár.

 

1. Úthlutun verkefnastyrkja og stofn- og rekstrarstyrkja

Borist höfðu 62 umsóknir um verkefnastyrki og 20 um stofn- og rekstrarstyrki. Alls 82 umsóknir, sótt var um kr. 144.747.261 þar af kr. 84.871.329 til verkefnastyrkja og kr. 59.875.932 til stofn- og rekstrarstyrkja.

Formaður gerði grein fyrir hvaða fjármagn menningarhluti Uppbyggingarjóðs hefði til ráðstöfunar. Samkvæmt fundargerð stjórnar Eyþings nr. 312 frá 23.10.2018 er heildarfjármagn sem fagráð menningar hefur til ráðstöfunar kr. 40.000.000.

 

Um vanhæfni:

Guðni Bragason kvaðst vanhæfur í umsóknum nr. 3849 og 3868.

Sólveig Elín Þórhallsdóttir kvaðs vanhæf í umsókn nr. 3929.

 

Unnið var að flokkun og yfirferð umsókna að fundarlokum, út frá verklagsreglum sjóðsins. Gert var fundarhlé frá 12:30 – 13:00.

Unnið að yfirferð umsókna. Fundi slitið kl. 19:00

 

Vigdís Rún Jónsdóttir fundarritari.

 

 

 

 

Getum við bætt síðuna?