Fara í efni

Fagráð menningar - 16. fundur

15.01.2018

Árið 2018, mánudagurinn 15. janúar kl. 13:30, kom fagráð menningar saman til fundar að Hotel Natur, Þórisstöðum. Mætt voru: Arnór Benónýsson formaður, Hildur Stefánsdóttir, Sólveig Elín Þórhallsdóttir, Hulda Sif Hermannsdóttir og Valdimar Gunnarsson. Einnig var mætt Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnisstjóri menningarmála hjá Eyþingi.

 

Fundarsetning:
Formaður Arnór Benónýsson, bauð fundarmenn velkomna til fundar og gengið var til dagskrár. 

Haldið var áfram vinnu, við mat á styrkumsóknum og afgreiðslu þeirra, þar sem frá var horfið og ítarlega farið yfir allar styrkumsóknir og þær metnar út frá verklagsreglum sjóðsins. 

Fagráð menningar gerir að tillögu sinni að eftirtalin verkefni hljóti styrkvilyrði úr menningarhluta Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra fyrir árið 2018. 

1. Úthlutun verkefnisstyrkja

 

  

2. Úthlutun stofn- og rekstarstyrkja 

Fagráð menningar gerir að tillögu sinni að eftirtaldir aðilar hljóti styrkvilyrði um stofn- og rekstrarstyrk úr menningarhluta Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra árið 2018.

 

 

Önnur mál 

Frá fagráði atvinnuþróunar og nýsköpunar bárust tvær umsóknir inn á borð fagráðs menningar; 2223 og 2105. Fagráð menningar tók umsóknirnar til skoðunar og hafnaði báðum á þeim forsendum að þær ættu heima í atvinnu- og nýsköpunarhlutanum eins og umsækjendurnir töldu.

 

Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 17:05 

Vigdís Rún Jónsdóttir fundarritari.

Getum við bætt síðuna?