Fara í efni

Fagráð menningar - 11. fundur

26.03.2017

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra

Fagráð menningar

11. fundur.

Árið 2017, sunnudaginn 26. mars kl. 15:00, kom fagráð menningar saman til fundar að Garðarsbraut 5, Húsavík. Mætt voru: Arnór Benónýsson formaður, Andrea Hjálmsdóttir, Hildur Stefánsdóttir, Sólveig Elín Þórhallsdóttir og Valdimar Gunnarsson. Einnig var mætt Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi.

Fundarsetning:

Formaður, Arnór Benónýsson, bauð fundarmenn velkomna til fundar og  gengið var til dagskrár.

1. Úthlutun verkefnastyrkja

Borist höfðu 89 umsóknir um verkefnastyrki og 22 um stofn- og rekstarstyrki. Alls 111 umsóknir, sótt var um kr. 121.068.317 þar af kr. 75.373.741 til verkefnastyrkja og kr. 45.694.576 til stofn- og rekstrarstyrkja.

Formaður gerði grein fyrir hvaða fjármagn menningarhluti Uppbyggingarsjóðs hefði til ráðstöfunar. Samkvæmt fundargerð stjórnar Eyþings nr. 293 frá 15. mars 2017 er heildarfjármagn sem fagráð menningar hefur til ráðstöfunar  kr. 47.032.325 að meðtöldum niðurfelldum og lækkuðum styrkloforðum. 

 

Um vanhæfi:

Arnór kvaðst vanhæfur í umsóknum nr. M-17032, M-17034, M-17037

Hildur kvaðst vanhæf í umsókn nr.  M-st-17004

Andrea kvaðst vanhæf í umsókn nr.  M-17054

Valdimar kvaðst vanhæfur í umsókn nr. M-17033

 

Unnið var að flokkun og yfirferð umsókna að fundarlokum, út frá verklagsreglum sjóðsins.  Gert var fundarhlé frá 20.30-21.30.

Fleira ekki gert. Fundið slitið til kl. 22.40

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir fundarritari

 

Getum við bætt síðuna?