Fara í efni

Fagráð atvinnuþróunar og nýsköpunar - 7. fundur

29.04.2016

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra

Fagráð atvinnuþróunar og nýsköpunar

 

7. fundur

Haldinn var til fjarfundur í fagráði atvinnuþróunar og nýsköpunar, föstudaginn 29. apríl 2016 kl. 13:00 vegna umsókna á svæði Þingeyjarsýslu. Fundurinn fór fram í GoToMeeting fjarfundakerfi og símafundi. Mættir voru Sigurður Steingrímsson, formaður fagráðs, Heiðrún Óladóttir og Snæbjörn Sigurðarson fulltrúar af Þingeyjarsýslusvæðinu ásamt Ara Páli Pálssyni starfsmanni Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Uppbyggingarsjóðs.

Haldið var áfram yfirferð umsókna þar sem frá var horfið og umsóknir ræddar og metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem fram koma í Sóknaráætlun og umsóknargögnum sjóðsins.

Sigurður Steingrímsson vék af fundi vegna vanhæfis við umræður og afgreiðslu umsóknar Þ-16013 frá Mýsköpun og NMÍ.

Heiðrún Óladóttir vék af fundi vegna vanhæfis við umræður og afgreiðslu umsóknar Þ-16018 frá Símey og Þekkingarneti Þingeyinga.

Í lok fundar lágu fyrir tillögur fagráðsfulltrúa að úthlutun styrkja og skilyrðum um þá eftir því sem við átti. Starfsmanni AÞ var falið að uppfæra matsskjalið í samræmi við niðurstöður fundarins fyrir á sameiginlegan fagráðsfund þriðjudaginn 3. maí 2016.

Fundi var slitið kl.15:00

 

 

Getum við bætt síðuna?