Fara í efni

Fagráð atvinnuþróunar og nýsköpunar - 1. fundur

18.06.2015

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra

Fagráð atvinnuþróunar og nýsköpunar

 

1. fundur

Fundur fagráðs vegna úthlutunar Uppbyggingarsjóðs árið 2015 var haldinn að Garðarsbraut 5, Húsavík fimmtudaginn 18. júní 2015 kl. 09:00

Mætt voru úr fagráði Sigurður Steingrímsson og Snæbjörn Sigurðarson. Heiðrún Óladóttir var í síma. Auk þeirra sat fundinn Reinhard Reynisson frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga.

Alls bárust 61 umsókn í atvinnuþróunar og nýsköpunarhluta uppbyggingarsjóðs. Á fundinum var unnið að yfirferð umsókna frá svæði Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga. Umsóknirnar voru ræddar og metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem fram koma í Sóknaráætlun og umsóknargögnum sjóðsins.

Fundi lauk kl. 11:00.

Getum við bætt síðuna?