Fara í efni

20. fundur - Fagráð menningar

11.01.2020

Fagráð menningar – 20. fundur

 

20. fundur. 

Árið 2020, laugardaginn 11. janúar kl. 10:30, kom fagráð menningar saman til fundar að Hótel Natur, Þórisstöðum. Mætt voru: Hulda Sif Hermannsdóttir formaður, Sólveig Elín Þórhallsdóttir, Guðni Bragason og Ólafur Stefánsson. Einnig var mætt Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnastjóri menningarmála hjá Samtökum atvinnuþróunar og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Líney Sigurðardóttir forfallaðist vegna veðurs. 

 

Fundarsetning:

Formaður, Hulda Sif Hermannsdóttir, bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár. 

 

1.Úthlutun verkefnastyrkja og stofn- og rekstrarstyrkja

Borist höfðu 78 umsóknir um verkefnastyrki og 12 um stofn- og rekstrarstyrki. Alls 90 umsóknir, sótt var um kr. 144.607.996 þar af kr. 111.048.372 til verkefnastyrkja og kr. 33.559.624 til stofn- og rekstrarstyrkja. 

Formaður gerði grein fyrir hvaða fjármagn menningarhluti Uppbyggingarsjóðs hefði til ráðstöfunar. Samkvæmt fundargerð stjórnar Eyþings nr. 327 frá 20.11.2019 er heildarfjármagn sem fagráð menningar hefur til ráðstöfunar kr. 38.000.000.

Um vanhæfi:

Enginn lýsti sig vanhæfann á fundinum. 

Unnið var að flokkun og yfirferð umsókna að fundarlokum, út frá verklagsreglum sjóðsins. Gert var fundarhlé frá 12:30 – 13:00.

Unnið að yfirferð umsókna. Fundi slitið kl. 19:30.

 

Vigdís Rún Jónsdóttir fundarritari. 

Getum við bætt síðuna?