Fara í efni

Fundargerð 86. fundar stjórnar SSNE - 15. september 2026

15.09.2026

Fundur haldinn þriðjudaginn 15. september 2026 á Teams. Hófst fundurinn kl. 13.00.

Fundinn sátu: Heimir Örn Árnason, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Bjarki Brynjólfsson í forföllum Sunnu Maríu Jónasdóttur, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Monika M. Stefánsdóttir, Hermann Ingi Gunnarsson, Nanna Marteinsdóttir í forföllum Knúts Emils Jónassonar, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Ólafur Rúnar Ólafsson, Gísli Gunnar Oddgeirsson, Jóhann K. Jóhannsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.

  1. Eimur – kynning og drög að samningi til þriggja ára
    Fráfarandi framkvæmdastjóri Ottó Elíasson og tilvonandi framkvæmdastjóri Eims Hildur Arna Magnúsdóttir mættu til fundarins kynntu rekstur og helstu verkefni Eims. Einnig voru lögð fram drög að samningi vegna Eims næstu þrjú árin.
    Stjórn þakkar fyrir kynninguna og þakkar Ottó fyrir samstarfið á síðustu árum og óskar Hildi Örnu velfarnaðar í nýju starfi. Stjórn tekur jákvætt í fyrirliggjandi drög að samningi og felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu og leggja fram til endanlegrar samþykktar á næsta fundi stjórnar.
  2. Markaðsstofa Norðurlands – staða ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra
    Halldór Óli Kjartansson staðgengill framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands eystra mætti til fundarins og fór yfir stöðu ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra, sagði frá starfsemi Markaðsstofunnar og stöðu flugþróunarsjóðs.
    Stjórn þakkar Halldóri Óla fyrir kynninguna.
  3. Bókun sveitarstjórnar Hörgársveitar
    Lögð fram bókun sveitarstjórnar Hörgársveitar frá 14. ágúst síðastliðnum þar sem gerð er athugasemd við að Hörgársveit eigi hvorki aðalfulltrúa né varafulltrúa í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs.
    Stjórn þakkar fyrir áhuga og ábendingu sveitarstjórnar Hörgársveitar á Uppbyggingarsjóði og mun hafa hana til hliðsjónar við skipan næstu úthlutunarnefndar.
  4. Starfsreglur stjórnar
    Rætt um starfsreglur stjórnar, einkum varðandi afgreiðslu mála milli funda til að tryggja að samræmi sé milli framkvæmdar og skrifaðra starfsreglna.
    Stjórn samþykkir að halda áfram óbreyttum starfsreglum.
  5. Þinggerð haustþings 2026
    Þinggerð haustþings 2026 lögð fram til staðfestingar. Einnig rætt um framkvæmd haustþingsins og framfylgd ályktana þingsins.
    Stjórn samþykkir þinggerðina og felur framkvæmdastjóra að senda hana út til sveitarfélaganna til kynningar.
  6. Skipan starfshóps um Heilbrigðiseftirlitið
    Í samræmi við ályktun haustþings SSNE 2026 eru lögð fram til umræðu fyrstu drög að erindisbréfi fyrir starfshóp til að greina umfang þeirra verkefna sem áfram verða á ábyrgð sveitarfélaga eftir breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits frá og með 1. janúar 2027.
    Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna erindisbréfið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fram á næsta fundi til staðfestingar.
  7. Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra
    Rætt um áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra árið 2026 og val á þeim.
    Stjórn samþykkir að fela formanni og varaformanni að vinna með framkvæmdastjóra tillögur að áhersluverkefnum og leggja fyrir næsta fund.
  8. Ársþing SSNE 2027
    Rætt um dagsetningu og staðsetningu Ársþings SSNE 2027. Lagt er til að þingið verði í vikunni 4.-9. apríl og verði haldið á Húsavík.
    Stjórn samþykkir að þingið verði haldið á Húsavík 8.-9. apríl 2027.
  9. Mál til kynningar
    1. Niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (landshlutaniðurstöður).
    2. fundur stjórnar SSA.
    3. fundur stjórnar Austurbrúar.
  10. Mál til umsagnar
    1. Fjárlög, mál 1.
      Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna umsögn vegna málsins og leggja fyrir stjórn.
    2. Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027, mál 2.
      Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna umsögn vegna málsins og leggja fyrir stjórn.
    3. Sveitarstjórnarlög, mál 5.
      Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna umsögn vegna málsins og leggja fyrir stjórn.
    4. Tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði (samráðsgátt stjórnvalda).
      Stjórn mun ekki senda inn umsögn á þessu stigi málsins.
    5. Frumvarp til laga um stórþörungarækt í sjó – Áform (samráðsgátt stjórnvalda).
      Stjórn mun ekki senda inn umsögn á þessu stigi málsins.
    6. Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki (samráðsgátt stjórnvalda).
      Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna umsögn vegna málsins og leggja fyrir stjórn.
    7. Hvítbók um endurhæfingarþjónustu (Samráðsgátt stjórnvalda).
      Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna umsögn vegna málsins og leggja fyrir stjórn.
  11. Önnur mál
    Engin önnur mál voru rædd.

Fundi slitið kl. 15:06.

Getum við bætt síðuna?