Fundargerð 82. fundar stjórnar SSNE - 24. mars 2026
Fundur haldinn fimmtudaginn 24. mars 2026 á Teams og hófst kl. 13:15.
Fundinn sátu: Lára Halldóra Eiríksdóttir, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Axel Grettisson, Hermann Ingi Gunnarsson, Jóna Björg Hlöðversdóttir, Þórunn Sif Harðardóttir, Þröstur Friðfinnsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Aðrir stjórnarmenn boðuðu forföll en vegna aðstæðna var boðað til fundarins með skömmum fyrirvara.
- Ársþing SSNE 2026
Boðað var til fundarins vegna þess að veðurspá fyrir komandi fimmtudag þegar fyrirhugað er að halda ársþing SSNE á Dalvík er tvísýn hvað varðar færð á vegum.
Stjórn samþykkir að færa þann hluta þingsins er fellur undir hefðbundin aðalfundarstörf á Teams og mun sá fundur hefjast kl. 12:30, fimmtudaginn 26. mars næstkomandi. Fyrirhugaðri málstofu um hlutverk sveitarfélaga í neyðarástandi er frestað til haustþings.
Fundi slitið kl. 13:25.