Fundargerð 80. fundar stjórnar SSNE - 5. febrúar 2026
05.02.2026
Fundur haldinn fimmtudaginn 5. febrúar 2026 á Teams og hófst fundurinn kl. 13:30.
Fundinn sátu: Lára Halldóra Eiríksdóttir, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Guðjón M. Ólafsson, Jón Þór Benediktsson í forföllum Axels Grettissonar, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir í forföllum Hildu Jönu Gísladóttur, Katrín Sif Ingvarsdóttir, Hermann Ingi Gunnarsson, Jóna Björg Hlöðversdóttir, Mirjam Blekkenhorst, Þórunn Sif Harðardóttir, Þröstur Friðfinnsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
- Uppbyggingarsjóður Sóknaráætlunar Norðurlands eystra
Fyrir fundinum lágu tillögur til breytinga á Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra fyrir næstu úthlutun sjóðsins. Breytingarnar snúa að fjölda funda úthlutunarnefndar, skipan úthlutunarnefndar og breytingum á greiðslufyrirkomulagi til styrkþega. Díana Jóhannsdóttir verkefnastjóri mætti til fundarins undir þessum lið og kynnti tillögurnar.
Stjórn þakkar Díönu fyrir kynninguna. Stjórn tekur jákvætt í tillögurnar og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. - Sóknaráætlun Norðurlands eystra – Viðauki vegna aukaframlags frá fjárlaganefnd Alþingis
Lagður fram viðaukasamningur við innviðaráðuneyti vegna aukaframlags frá fjárlaganefnd Alþingis til Sóknaráætlunar Norðurlands eystra upp á 35 m.kr. Heildarupphæðin var 280 m.kr. sem skiptist jafnt á milli landshlutanna átta. Einnig lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra um viðaukasamninginn og tillaga um ráðstöfun fjármunanna.
Stjórn leggur til við stýrihóp stjórnarráðsins um byggðamál að 29 m.kr. verði settar í Uppbyggingarsjóð Sóknaráætlunar Norðurlands eystra og 6 m.kr. verði settar í Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.
Lára Halldóra Eiríksdóttir vék af fundi kl. 13:50. Tók þá Helena Eydís Ingólfsdóttir varaformaður stjórnar við stjórn fundarins. - Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra árið 2026
Fjallað um áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra árið 2026. Fyrir fundinum lágu tvær umsóknir, annars vegar frá Markaðsstofu Norðurlands og hins vegar frá Flugsafni Íslands.
Stjórn samþykkir eftirfarandi áhersluverkefni:
Gönguleiðaverkefni Markaðsstofunnar 4.000.000,- kr.
Flugsafnið á Akureyri 6.000.000,- kr. - Ársþing SSNE 2026
Lögð fram fyrstu drög að dagskrá Ársþings SSNE 2026 sem haldið verður 26. mars n.k. á Dalvík.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drögin áfram í samræmi við umræður á fundinum. - Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 og endurskoðun Samgöngu- og innviðastefnu SSNE
Lögð fram drög að umsögn SSNE um Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 sem nú er til umfjöllunar á Alþingi.
Lára Halldóra Eiríksdóttir mætti aftur til fundarins kl. 14:26 og tók við stjórn fundarins eftir umfjöllun um lið 5. - Mál lögð fram til kynningar
- Skýrsla Byggðastofnunar til innviðaráðherra um jöfnun flutningskostnaðar vegna flugvélaeldsneytis.
- Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknasjóð.
- Fundargerðir 631. og 632. funda stjórnar SASS.
- Byggðastofnun: Tekjur einstaklinga eftir svæðum 2008-2024.
- Mál til umsagnar
- Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (Samráðsgátt).
- Frumvarp um stofnun innviðafélags (Samráðsgátt).
- Frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun, 320. mál.
- Tillaga til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
- Grænbók um byggðamál (Samráðsgátt).
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæður).
Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda inn umsagnir vegna a., c., d., e., og f. liðar. Ákveðið að senda ekki inn umsögn um b. lið að svo stöddu.
Jóna Björg Hlöðversdóttir yfirgaf fundinn kl. 14:50.
- Önnur mál
-
- Skýrsla framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjóri fór yfir það helsta úr starfi samtakanna frá síðasta fundi.
- Skýrsla framkvæmdastjóra
-
Fundi slitið kl. 15:10.