Fara í efni

Fundargerð 74. fundar stjórnar SSNE - 4. júní 2025

04.06.2025

Fundur haldinn á í Fundarborg, Eyjafjarðarsveit miðvikudaginn 4. júní 2025 og hófst fundurinn kl. 10:10.

Fundinn sátu: Lára Halldóra Eiríksdóttir, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Guðjón M. Ólafsson, Axel Grettisson, Jana Salóme Ingibjargardóttir í forföllum Hildu Jönu Gísladóttur, Hermann Ingi Gunnarsson, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, Mirjam Blekkenhorst, Þórunn Sif Harðardóttir, Gísli Gunnar Oddgeirsson í forföllum Þrastar Friðfinnssonar, og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Katrín Sif Ingvarsdóttir forfallaðist og varafulltrúi hennar einnig.

Formaður hóf fundinn á að þakka fulltrúa Eyjafjarðarsveitar sérstaklega fyrir móttökurnar og bauð sömuleiðis Jönu Salóme sérstaklega velkomna á fundinn, en þetta var fyrsti stjórnarfundur hennar á kjörtímabilinu.

1. Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2025-2029
Rætt um áherslur í tengslum við bæði Uppbyggingarsjóð og áhersluverkefni sóknaráætlunar Norðurlands eystra. Elva Gunnlaugsdóttir og Díana Jóhannsdóttir, verkefnastjórar SSNE sátu fundinn undir þessum lið og leiddu samtalið.

2. Aðalfundur Greiðrar leiðar
Boðað hefur verið til aðalfundar Greiðrar leiðar þann 25. júní næstkomandi.
Stjórn felur framkvæmdastjóra SSNE að fara með atkvæði samtakanna á aðalfundinum.

3. Fundartímar stjórnar SSNE
Rætt um tímasetningu stjórnarfunda næsta árið.
Stjórn samþykkir að fastir fundir stjórnar verði fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 13:30 með fyrirvara um mögulegar breytingar.

4. Staðan á Bakka
Helena Eydís Ingólfsdóttir, fulltrúi Norðurþings í stjórn SSNE kynnti stöðu verksmiðju PCC BakkiSilicon á Bakka við Húsavík.
Stjórn þakkar fyrir kynninguna og hvetur Alþingi og ríkisstjórn Íslands til að bregðast skjótt við þeim aðstæðum sem nú eru uppi varðandi starfsemi PCC BakkiSilicon á Bakka við Húsavík. Stjórn SSNE leggur jafnframt áherslu á að aukinn kraftur verði settur í uppbyggingu græns iðngarðs við Bakka, að hálfu ríkisins, til að nýta sem best þær fjárfestingar sem ríkið hefur þegar farið í þar vegna uppbyggingarinnar, s.s. orkuöflun, línulagnir, hafnarmannvirki og gangnagerð. Enn fremur að Alþingi beiti sér fyrir því að í framkvæmdaáætlun Landsnets og kerfisáætlun 2025-2034 verði tvítenging Bakka forgangsatriði en ekki fyrirséð þörf til lengri tíma. Mikilvægt er fyrir frekari atvinnuuppbyggingu í landshlutanum að tvítengingin verði á framkvæmdaáætlun með skýra tímasetningu og fjármögnun.

5. Verklag við endurskoðun Samgöngu- og innviðstefnu SSNE
Lögð fram tillaga frá framkvæmdastjóra að verklagi við endurskoðun Samgöngu- og innviðastefnu SSNE.
Stjórn samþykkir eftirfarandi verklag:

Stjórn taki afstöðu til þess árlega hvort ástæða sé til að endurskoða samgöngu- og innviðastefnu SSNE, þegar fyrirhugað er að leggja fram nýja samgönguáætlun stjórnvalda, eða þegar stórar breytingar verða í samgöngum eða innviðum innan landshlutans. Jafnframt skal taka stefnuna til umfjöllunar á þingi SSNE einu sinni á kjörtímabili. Starfsfólk SSNE vinni árlega einfalda stöðuskýrslu þar sem farið er yfir framgang aðgerða, þá einkum í tengslum við gildandi samgöngu- og innviðastefnu SSNE. Skýrslan verði kynnt aðildarsveitarfélögunum.

6. Mál til kynningar
a) Ársfundur Markaðsstofu Norðurlands.
Ársfundur Markaðsstofu Norðurlands var haldinn 2. júní s.l.. Stjórn hafði áður fjallað um í tölvupósti og samþykkt að skipa Hlyn Jóhannsson, bæjarfulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn Markaðsstofu Norðurlands fyrir hönd SSNE.
Stjórn staðfestir fyrri ákvörðun.

b) Fundur stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál.

c) Atlas of regional development.

7. Mál til umsagnar
a) Umsögn um kerfisáætlun Landsnets 2025-2034.
Umsögn SSNE hafði áður verið samþykkt í tölvupósti.
Stjórn staðfestir umsögnina.

b) Frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál.

c) Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) á Samráðsgátt stjórnvalda.

8. Önnur mál
a) Starfsmannahandbók SSNE
Lögð fram til kynningar drög að nýrri starfsmannahandbók SSNE.

b) Munnleg skýrsla framkvæmdastjóra
Framkvæmdastjóri kynnti það helsta úr starfsemi félagsins frá síðasta stjórnarfundi

Fundi slitið kl. 14:00.

Getum við bætt síðuna?