Fundargerð 8. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra - 9. september 2026
Dagsetning: 9. september 2026
Tími: Kl. 15:00 – 16:00
Fundarstaður: Fjarfundur (Teams)
Fundarstjóri: Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra
Ritari: Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra
Fundinn sátu:
Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Guðrún Hallfríður Björnsdóttir, Halldór Tumi Ólason, Hilma Steinarsdóttir, Hjördís Albertsdóttir, Ísak Már Aðalsteinsson, Jón Höskuldsson, Karólína Gunnarsdóttir, Ragnheiður Diljá Gunnarsdóttir, Snæbjörn Ómar Guðjónsson, Svava Hrönn Magnúsdóttir, Þorbjörg Otta Jónasdóttir, Þóra Björg Sigurðardóttir og Þóra Pétursdóttir
1. Helstu niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar á Norðurlandi eystra 2026
Verkefnastjóri kynnti helstu niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 fyrir Norðurland eystra. Fram kom að niðurstöður fyrir landshlutann væru almennt jákvæðar hvað varðar fjölskyldutengsl, skóla, félagslega þátttöku og öryggi barna. Auk þess er mikil þátttaka í íþrótta- og félagsstarfi og vímuefnaneysla mælist lág í samanburði við aðra landshluta. Jafnframt kom fram að andleg líðan ungmenna væri stærsta áskorunin samkvæmt niðurstöðunum. Umræður urðu um mikilvægi þess að huga betur að andlegri líðan ungmenna, efla forvarnir, styrkja tengsl barna við fullorðna og halda áfram að styðja við fjölskyldur, skóla og íþrótta- og frístundastarf. Samþykkt var að verkefnastjóri kannaði hvort hægt væri að fá fulltrúa Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar á fund ráðsins síðar á starfsárinu til að fjalla nánar um niðurstöðurnar.
2. Svör frá ungmennaráðum varðandi erindi Farsældarráðs Norðurlands eystra um farsæld barna
Verkefnastjóri kynnti svör sem borist hafa frá ungmennaráðum vegna erindis Farsældarráðs um farsæld barna sem sent var til ungmennaráða á Norðurlandi eystra í maí sl. Svör höfðu borist frá tveimur ungmennaráðum af þeim 10 ráðum sem fengu erindið. Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar og ungmennaráð Grýtubakkahrepps svöruðu erindinu. Í svörunum komu meðal annars fram áherslur á bætt aðgengi að stoð- og sérfræðiþjónustu í skólum, aukna fræðslu um andlega líðan, eflingu foreldrastarfs, aukinn stuðning við félagsmiðstöðvastarf og áframhaldandi vinnu gegn einelti. Fundarmenn töldu athyglisvert hversu vel margar ábendingarnar samræmdust þeim áherslum sem fram koma í áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027–2030. Rætt var um mikilvægi þess að halda áfram að virkja ungmennaráðin og skapa vettvang fyrir þátttöku þeirra í umræðu um farsæld barna og ungmenna.
3. Drög að áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027–2030 samþykkt
Verkefnastjóri fór yfir uppfærð drög að áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027–2030. Farið var yfir helstu athugasemdir sem borist höfðu frá sveitarfélögum, þjónustuveitendum ríkisins og öðrum samstarfsaðilum og þær breytingar sem gerðar höfðu verið í kjölfarið. Athugasemdir við drögin höfðu borist fyrir fundinn frá: Akureyrarbæ, Hörgársveit, Norðurþingi, Þingeyjarsveit, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Lögreglunni á Norðurlandi eystra, svæðisfulltrúum ÍSÍ og UMFÍ og framhaldsskólum. Sérstaklega var rætt um aðgerðir sem snúa að andlegri heilsu barna og ungmenna, skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, sálfélagslegri þjónustu í framhaldsskólum, tengiliðum í skólum, forvörnum og samfélagslöggæslu. Fundarmenn ræddu einnig mælikvarða áætlunarinnar og mikilvægi þess að byggja eftirfylgni á raunhæfum og aðgengilegum gögnum. Fram komu sjónarmið um að áætlunin væri fyrst og fremst leiðarljós og upphafspunktur frekari vinnu. Mikilvægt væri að þróa aðgerðirnar áfram og skipa eftir atvikum starfshópa sem fylgdu framkvæmd þeirra markvisst eftir á komandi árum. Ráðið samþykkti drögin eins og þau lágu fyrir á fundinum og fól verkefnastjóra að senda áætlunina til umfjöllunar og samþykktar hjá sveitarstjórnum og framkvæmdastjórnum þjónustuveitenda ríkisins.
4. Önnur mál
- Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir og Daníel Sigurður Evaldsson, sem hafa setið í ráðinu sem fulltrúar foreldrafélaga frá stofnun þess, hafa bæði óskað eftir að láta af störfum sem fulltrúar í ráðinu. Verkefnastjóra var falið að finna tvo nýja fulltrúa foreldrafélaga til setu í Farsældarráði Norðurlands eystra.
- Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra, þakkaði fyrir gott og gjöfult samstarf síðustu tvö ár í tilefni þess að hann lætur af störfum sem verkefnastjóri ráðsins. Fram kom að Elva Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri hjá SSNE, muni taka við sem verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra til bráðabirgða. Fundarmenn þökkuðu Þorleifi fyrir gott samstarf og framlag hans við uppbyggingu og starf Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Fundi slitið: Kl. 16:00
Næsti fundur: Verður haldinn í október 2026 samkvæmt fundaáætlun ráðsins.