Fara í efni

Fundargerð 7. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra - 12. ágúst 2026

12.08.2026

Dagsetning: 12. ágúst 2026
Tími: Kl. 15:00 – 16:00
Fundarstaður: Fjarfundur (Teams)
Fundarstjóri: Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra
Ritari: Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra

Fundinn sátu:
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Eyrún Rafnsdóttir, Guðrún Hallfríður Björnsdóttir, Halldór Tumi Ólason, Helga Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Hilma Steinarsdóttir, Ísak Már Aðalsteinsson, Jón Höskuldsson, Karólína Gunnarsdóttir, Snæbjörn Ómar Guðjónsson, Svala Einarsdóttir, Svava Hrönn Magnúsdóttir, Þóra Björg Sigurðardóttir, Þóra Pétursdóttir og Þorgeir Rúnar Finnsson.

1. Drög að áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027–2030

Verkefnastjóri kynnti drög að áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra fyrir tímabilið 2027–2030. Farið var yfir vinnuferlið, forsendur áætlunarinnar og helstu áherslur. Fram kom að drögin byggja meðal annars á vinnustofum farsældarráðs frá því í maí sl., gögnum úr Íslensku æskulýðsrannsókninni og umræðum innan framkvæmdahóps ráðsins. Áhersla hefur verið lögð á að setja fram skýra og aðgengilega áætlun sem nýtist sem sameiginlegt leiðarljós fyrir hagaðila á svæðinu. Jafnframt var rætt að gerð slíkrar áætlunar, þar sem margir hagaðilar koma að, sé flókið verkefni og að ólík sjónarmið þurfi að rúmast innan hennar. Við mótun aðgerða hafi verið leitast við að finna jafnvægi milli þess að þær hafi skýran tilgang og áhrif, án þess að vera bindandi fyrir þá aðila sem þær varða. Einnig hafi verið lögð áhersla á raunhæfan tímaramma aðgerða. Umræður fóru fram um uppbyggingu og efnisinnihald áætlunar. Nokkrir fulltrúar töldu markmið og áherslur skýrar en bentu á að aðgerðir, ábyrgð, mælikvarðar og næstu skref þyrftu frekari útfærslu. Einnig komu fram ábendingar um að einstakar aðgerðir þyrftu nánari umræðu innan baklandshópa viðkomandi fulltrúa, meðal annars vegna mála sem varða Heilbrigðisstofnun Norðurlands, framhaldsskóla, lögreglu og íþróttahreyfingu. Samstaða var um að nýta drögin áfram sem vinnuskjal. Verkefnastjóri hvatti fulltrúa til að senda skriflegar athugasemdir og breytingartillögur með skilvirkum hætti. Ákveðið var að fulltrúar fengju svigrúm til að fara með drögin í sína baklandshópa og safna athugasemdum og tillögum að breytingum fyrir næsta fund ráðsins, sem verður 9. september nk. Stefnt er að því að senda fullunna áætlun til sveitarstjórna, framkvæmdastjóra þjónustuveitenda ríkisins og almennra þjónustuveitenda eftir næsta fund ráðsins.

2. Farsældardagur Farsældarráðs Norðurlands eystra 4. september 2026

Verkefnastjóri fór yfir stöðu undirbúnings fyrir Farsældardag Farsældarráðs Norðurlands eystra, sem haldinn verður í Hofi á Akureyri 4. september 2026. Dagskrá dagsins var kynnt og markhópur viðburðarins ræddur. Fram kom að dagurinn er ætlaður tengiliðum farsældar, málstjórum, stjórnendum, fulltrúum sveitarfélaga, skóla, lögreglu, heilbrigðisþjónustu, íþróttahreyfingar og öðrum sem koma að farsæld barna á svæðinu. Fundarmenn lýstu almennt ánægju með fyrirliggjandi dagskrá. Áréttað var mikilvægi þess að hvetja hagaðila til þátttöku og minna á skráningu. Verkefnastjóri fór yfir fyrirkomulag skráninga og hvatti fulltrúa til að miðla upplýsingum um viðburðinn innan sinna stofnana og samstarfsneta.

3. Önnur mál

Verkefnastjóri greindi frá því að hann myndi láta af störfum hjá Farsældarráði Norðurlands eystra með haustinu vegna nýs starfs. Jafnframt upplýsti hann að unnið væri að því að tryggja áframhald verkefnisins hjá SSNE.

Fundi slitið: Kl. 16:00
Næsti fundur: Verður haldinn í september 2026 samkvæmt samþykktri fundadagskrá ráðsins.

Getum við bætt síðuna?