Fundargerð 6. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra - 13. maí 2026
Dagsetning: 13. maí 2026
Tími: Kl. 14:00 – 17:00
Fundarstaður: Hof
Fundarstjóri: Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra
Ritari: Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra
Fundinn sátu:
Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir, Amelia Ásdís Kozaczek, Andri Freyr Sveinsson, Anna Björg Leifsdóttir, Bára Björk Björnsdóttir, Benedikt Barðason, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Bjarki Ármann Oddsson, Gísli Bjarnason, Guðrún Árnadóttir, Halldór Ingi Guðmundsson, Helga Helgadóttir, Helga Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Helga Vilhjálmsdóttir, Hilma Steinarsdóttir, Hjördís Sigríður Albertsdóttir, Ingibjörg Lára Símonardóttir, Ingunn Eir Eyjólfsdóttir, Ísak Már Aðalsteinsson, Jón Höskuldsson, Karólína Gunnarsdóttir, Margrét Ósk Hermannsdóttir, María Aðalrós Sigurðardóttir, Ragnheiður Diljá Gunnarsdóttir, Rakel Ýr Ingibjargardóttir, Snæbjörn Ómar Guðjónsson, Svava Hrönn Magnúsdóttir, Þorbjörg Otta Jónasdóttir, Þóra Björg Sigurðardóttir og Þóra Pétursdóttir
1. Staðan varðandi farsældardag farsældarráðs
Verkefnastjóri kynnti stöðu undirbúnings fyrir farsældardag ráðsins. Undirbúningshópur hefur ákveðið að halda farsældardaginn 4. september 2026 í Hofi á Akureyri og hefur húsnæðið þegar verið bókað. Gert er ráð fyrir dagskrá frá kl. 10:00 til16:00 með stuttum erindum og mögulega vinnustofum. Fyrirhugað er að bjóða á málþingið: tengiliðum farsældar, málastjórum, fulltrúum ungmenna- og foreldraráða og öðrum hagaðilum. Verkefnastjóri greindi frá því að farsældarráð hafi fengið eina og hálfa milljón, úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra, til að standa straum af kostnaði sem hlýst af málþinginu.
2. Stofnun framkvæmdahóps farsældarráðs
Verkefnastjóri kynnti tillögu að stofnun framkvæmdahóps farsældarráðs. Markmið hópsins er að styðja við vinnu við gerð draga að áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna, þannig að ábyrgðin liggi ekki eingöngu hjá verkefnastjóra hvað varðar framgang ofangreindrar áætlunar. Eftirfarandi aðilar sem eru sviðsstjórar velferðarsviðs í sínu sveitarfélagi voru tilnefndir í hópinn: Karólína Gunnarsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Jón Höskuldsson, Hjördís Albertsdóttir og Eyrún Rafnsdóttir. Jafnframt var kallað eftir frekari þátttakendum og gaf Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir formaður Samtaka - svæðisráðs foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrabæjar, kost á sér til setu í hópnum.
3. Erindi um tækifæri farsældar: hagrænn ávinningur snemmtækrar íhlutunar
Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri Farsældarráðs Suðurnesja, flutti erindi um hagrænan ávinning snemmtækrar íhlutunar í lífi barna. Í erindinu var lögð áhersla á að líta á útgjöld til barna og fjölskyldna sem fjárfestingu fremur en kostnað, þar sem snemmtæk og samhæfð íhlutun geti skilað verulegum samfélagslegum og fjárhagslegum ávinningi til lengri tíma. Fram kom að þrátt fyrir umfangsmikinn kostnað sveitarfélaga vegna málefna barna falli einnig til verulegur viðbótarkostnaður þegar ekki er gripið nægjanlega snemma inn í aðstæður barna. Bent var á tengsl áfalla í barnæsku við aukna tíðni heilsu- og félagslegra vandamála síðar á ævinni, sem leiðir til aukins álags á þjónustukerfi. Jafnframt var undirstrikað að snemmtækar aðgerðir á fyrstu árum barns skili meiri árangri og geti dregið úr þörf á dýrari úrræðum síðar, auk þess sem árangursrík forvarnaverkefni geti haft mælanlega fjárhagslega ávöxtun. Að lokum var lögð áhersla á mikilvægt hlutverk farsældarráða í að samræma aðgerðir og stuðla að heildstæðri nálgun í þjónustu við börn og fjölskyldur.
4. Vinnustofur – svæðisbundin forgangsröðun aðgerða
Elva Gunnlaugsdóttir og Díana Jóhannsdóttir, verkefnastjórar hjá SSNE, leiddu vinnustofur um mótun áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna til fjögurra ára. Unnið var í hópum þar sem þátttakendur lögðu fram sjónarmið og forgangsröðun út frá helstu áskorunum á svæðinu. Vinnustofurnar unnu út frá grunnstoðum farsældar sem Íslenska æskulýðsrannsóknin rannsakar árlega og koma fram í mælaborði farsældar: þátttaka og félagsleg tengsl, öryggi og vernd, lífsgæði og félagsleg staða, heilsa og vellíðan og menntun. Sá efniviður sem varð til í vinnustofunum verður nýttur til áframhaldandi vinnslu á ofangreindu áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna.
Fundi slitið: Kl. 17:00
Næsti fundur: Verður haldinn í september 2026 samkvæmt samþykktri fundadagskrá ráðsins.