Fara í efni

Hugsað, hannað, smakkað

Hugsað, hannað, smakkað

HönnunarÞing/DesignThing er uppskeruhátíð skapandi greina þar sem hönnun og nýsköpun mætast á nýstárlegan hátt. Dagana 26. - 27. september verður viðburðurinn haldinn í þriðja sinn, við höfnina á Húsavík. Dagskrá hátíðarinnar er ofin úr þremur þráðum: Hönnun – Nýsköpun – Eitthvað nýtt. Rauðu þræðirnir eru sem sagt nýsköpun og hönnun, en svo er þriðji þráðurinn ávallt eitthvað nýtt.

Í haust verður þriðji þráðurinn matur!

,,Við erum afar spennt að sameina fjölbreytta sýn hönnuða, frumkvöðla og matreiðslufólks og bjóða gestum að kanna hvernig form, bragð og framtíðarsýn blandast saman í einstaka upplifun” segir Stefán Pétur Sólveigarson verkefnastjóri Hraðsins á Húsavík, en hann er forsprakki HönnunarÞings.

Að mörgu er að hyggja í skipulagningu fjölbreyttrar dagskrár líkt og HönnunarÞings og undirbúningur á  Stéttinni í fullum gangi þessa dagana. Á dagskránni verða erindi frá frumkvöðlum og hönnuðum, sýningar, uppákomur, matur, nýsköpun, matartækninýjungar og margt fleira. Tillögur að viðburðum eða erindum má senda á stefan@hac.is, ,,Við fögnum hugmyndum sem vekja skilningarvitin, örva sköpunargleðina og bjóða upp á nýjar leiðir til að sjá og skynja heiminn.”

Í fyrra var þriðji þráðurinn tónlist og má hér finna innlit í hátíðina:

Verið velkomin í innblástur, nýsköpun og sköpunargleði með okkur!

📅 26. og 27. september 2025
🕒 Hátíðin hefst kl. 10:00 á föstudegi og lýkur með tónleikum í Sjóböðunum kl. 23:00 á laugardegi
📍 Stéttin, Húsavík
💰 Enginn aðgangseyrir en hugmyndaskipti eru magnaður gjaldeyrir

Smelltu hér til að fá viðburðinn í dagatalið þitt

Að hátíðinni stendur Hraðið miðstöð nýsköpunar á Húsavík með vöruhönnuðinn Stefán Pétur Sólveigarson í fararbroddi. SSNE er samstarfsaðili og fagnar framtakinu og leggur sitt af mörkum til að vekja athygli á atvinnulífi á sviði nýsköpunar og skapandi greina. Með viðburðinum er meðal annars leitast við að opna augu fólks fyrir möguleikum þess að vinna að hönnun og öðrum skapandi greinum um allt land.

Getum við bætt síðuna?