Pistill framkvæmdastjóra - maí
Pistill framkvæmdastjóra - maí
Maí hefur verið einstaklega líflegur hjá SSNE, þar sem fjölbreytt verkefni og viðburðir áttu sér stað – í nánu samstarfi við fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga.
Við hófum mánuðinn á þátttöku í vorfundi Byggðastofnunar ásamt hinum landshlutasamtökunum, en hann var haldinn á Breiðdalsvík í ár, samhliða ársfundi Byggðastofnunar en Byggðastofnun er okkur ákaflega mikilvægur samstarfsaðili og alltaf gott að eiga samtöl með þeim og hinum landshlutasamtökunum. Þá tóku fulltrúar SSNE þátt í Tonik í Færeyjum sem er árleg nýsköpunar- og listahátíð, en við getum lært fjölmargt af frændum okkar og frænkum í Færeyjum og var Tonik gott dæmi um verkefni sem við viljum líta til varðandi stuðning við nýsköpun og skapandi greinar á Norðurlandi eystra.
En það var líka fjölmargt í gangi hjá okkur heima fyrir, en þar má fyrst nefna Norðansprotann, sem er nýsköpunarkeppni þar sem leitað var að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands. Keppnin fór fram dagana 19.-23. maí og lauk með úrslitum sem haldin voru í Messanum hjá Drift EA, en Upphaf fjárfestingasjóður veitti verðlaunafé upp á 1.000.000 króna. Sérstaklega ánægjulegt var hversu mörg áhugaverð fyrirtæki óskuðu eftir þátttöku en Norðansprotann í ár hlaut nýsköpunarfyrirtækið Norðursnakk.
Norðansprotinn er hluti af mótun nýsköpunarferðalags Norðurlands sem ætlað er að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndastigi að fjárfestingu og byggir á samstarfi SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA, Eims og Hraðsins. Með því samstarfi vonumst við til að geta stutt enn betur við frumkvöðla- og nýsköpunarstarf á Norðurlandi og má búast við fleiri spennandi viðburðum í haust.
Þá héldum við einnig Morgunfund Grænna skrefa, sem haldinn var í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Svansmerkið, SSNV, Eim og Loftum. Fundurinn, sem hófst á ávarpi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fjallaði meðal annars um tækifæri íslenskra sveitarfélaga til að geta vel í umhverfis- og loftslagsmálum. Fundurinn var vel sóttur og sköpuðust bæði áhugaverðar og gagnlegar umræður á fundinum.
Fjölmargt fleira mætti nefna úr starfsemi SSNE í maí, t.a.m. málþingið Menningarauðlind ferðaþjónustunnar, sem var ákaflega vel heppnað og góðan fund með útvarpsstjóra Stefáni Eiríkssyni um landsbyggðarstefnu RÚV.
Að lokum langar mig þó sérstaklega að nefna að nú í maí var sett af stað á ný fyrirtækjakönnun landshlutasamtakanna, sem til teljum afar mikilvægt að ná góðri þátttöku í. Þessi könnun veitir okkur mikilvægar upplýsingar um stöðu og viðhorf fyrirtækja á svæðinu og hjálpar okkur að forgangsraða rétt og bregðast við raunverulegum þörfum atvinnulífsins. Ég hvet öll fyrirtæki og stofnanir eindregið til að taka þátt – það skiptir máli að rödd ykkar heyrist!