Fara í efni

Lífgas- og áburðarframleiðsla: Tækifæri íslensks landbúnaðar

Lífgas- og áburðarframleiðsla: Tækifæri íslensks landbúnaðar

Systraverkefnin Eimur á Norðurlandi og Orkídea á Suðurlandi standa fyrir ráðstefnu um lífgas- og áburðarframleiðslu þar sem horft verður til tækifæra íslensks landbúnaðar. Ráðstefnan verður haldin þann 5. júní nk. á Hótel Selfossi, en hægt verður að fylgjast með erindum úr streymi. 

Kynnt verða grunnatriði lífgas- og áburðarframleiðslu á mannamáli og hvaða möguleikar eru fyrir hendi á Íslandi til að auka fæðu- og orkuöryggi og efla hringrásarhagkerfið. Markhópar ráðstefnunnar eru bændur og samtök þeirra, ráðuneyti, ráðgjafar, sveitarfélög og almenningur og munu bæði innlendur og erlendir sérfræðingar taka þátt. Öll áhugasöm eru hvött til að skrá sig hér, hvort sem er í streymi eða á stað. 

Getum við bætt síðuna?