Fara í efni
Umsóknarfrestur: verkefni félagasamtaka á sviði heilbrigðismála

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember næstkomandi.

Úthlutun fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Verkefnin skulu falla að heilbrigðis- og lýðheilsustefnu.

Styrkir eru meðal annars veittir til verkefna sem felast í því að:

  • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi
  • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna eða hópa þeim tengdum
  • Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum eru á eyðublaðavef Stjórnarráðsins: http://minarsidur.stjr.is.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti lýkur verður ekki tekin til umfjöllunar. Ekki er tekið við umsóknum um rekstrarstyrki.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 20. nóvember 2025. Úthlutað verður eigi síðar en 20. febrúar 2026.

Mikilvægir tenglar:

Fyrri úthlutanir:

 

Umsóknarfrestur: verkefni félagasamtaka á sviði heilbrigðismála