Fara í efni
Umsóknarfrestur: Loftslagssjóður

Loftslagssjóður auglýsir til umsóknar styrki til nýsköpunar og kynningar- og fræðslu á loftslagsmálum. Rannís hefur umsjón með sjóðnum, sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra.

Þetta er í þriðja skipti sem úthlutað verður úr Loftslagssjóði og eru rúmar 90 milljónir til ráðstöfunar að þessu sinni. Styrkirnir eru veittir til eins árs og er skipt í tvo flokka.

  • Styrkir til nýsköpunarverkefna en þeim er m.a. ætlað að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun og getur upphæð styrks í þeim flokki numið allt að 13 milljónum króna.
  • Styrkir til kynningar og fræðslu um loftslagsmál, sem geta numið allt að 7 milljón krónum.

24 verkefni hlutu styrk við úthlutun síðasta árs, 12 nýsköpunarverkefni og 12 kynningar- og fræðsluverkefni. Loftslagssjóður hefur frá fyrstu úthlutun veitt styrki að upphæð 335 milljónum króna, en 600 milljónum króna er varið til sjóðsins yfir fimm ára tímabil.

Áhersla verður lögð á verkefni:

  • sem hafa það að markmiði að draga úr losun, hafa möguleika á að nýtast sem víðast í samfélaginu og beinast að aðilum sem hafa talsverða möguleika á að draga úr losun
  • sem hagnýta grunnþekkingu sem þegar er til staðar

Verkefni sem ekki verða styrkt í þessari úthlutun:

  • Verkefni sem beinast að eflingu hringrásarkerfisins
  • Grunnrannsóknir

Athugið. Verkefni sem stuðla að endurheimt votlendis og verkefni sem stuðla að bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi, svo sem með skógrækt og landgræðslu, falla ekki undir verksvið sjóðsins.

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís (Mínar síður). Ekki er tekið við gögnum eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Umsækjendur skulu kynna sér vel handbók sjóðsins fyrir styrkárið 2022 áður en umsókn er gerð.

Nánari upplýsingar um Loftslagssjóð, úthlutunarreglur og aðgangur að umsóknarkerfi má finna á síðu sjóðsins.

Umsóknarfrestur er til 9. desember 2021.

 

Umsóknarfrestur: Loftslagssjóður